Meirihlutinn í borginni harðlega gagnrýndur/Er það nokkur furða,allt í ruggli þarna!!!!

Meirihlutinn í borginni harðlega gagnrýndur
Innlent | mbl.is | 18.8.2011 | 13:32

Borgarstjórnarfundur í Ráðhúsinu. Annarri umræðu um þriggja ára fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fór fram í borgarstjórn í gær. Hún var samþykkt með níu atkvæðum og í kjölfarið gagnrýndu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna meirihlutann harðlega.
Í sameiginlegri bókun borgarfulltrúanna er það harðlega gagnrýnt að þurft hafi áminningu af hálfu ríkisvaldsins til að borgin lyki þessu lögbundna verkefni, sem nú er lagt fram hálfu ári síðar en lög gera ráð fyrir. „Afsakanir meirihlutans halda ekki, enda eina ástæða þessara vanskila sú að meirihlutinn hefur hvorki getu né skilning á mikilvægi þess að slíkir grunnþættir í rekstri borgarinnar séu í lagi.“

Borgarfulltrúar minnihlutans segja kröfuna um vönduð og gensæ vinnubrögð ekki uppfyllt. Þriggja ára áætlunin hafi ekkert gildi enda komi engar upplýsingar fram um stefnu eða fyrirætlanir meirihlutans á næstu þremur árum. „Vel rekin borg hefur skýra stefnu. Skýra forgangsröðun fjármuna og markmið til lengri og skemmri tíma í öllum málaflokkum. Í Reykjavík hefur ekki verið sett fram nein stefna, heldur eru borgarbúar kynntir fyrir nýjum geðþóttaákvörðunum með reglulegu millibili, þvert á það sem lofað hefur verið og þvert á það sem borgarbúar eiga skilið.“ //auðvitað leiðist manni á afmælisdegi Borgarinnar okkar að vera að lasta stjórn hennar ,en hjá því er ekki komist,og þó þessi stjórn sem nú situr sér orðin i minnihluta kjósenda eins og skoðanir segja okkur er það svo að ekki er hægt að boða til kosninga fyrr en 4 ára eru liðin en það er nú hálfanað,og þvi er þetta eina aðferðin  að segja sína meiningu  og við eigum að láta þetta fólk þarna í Besta og samfylkingu heyra það,stjórnlaus eða illa stjornuð  Borg okkar er ekki það sem viljum i afmælisgjöf!!! en sagan segir okkur að við viljum breyta þessu/Halli gamli 


mbl.is Meirihlutinn í borginni harðlega gagnrýndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045660

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband