Íslenska sendiráðið rýmt/ þetta kemur manni algjörlega á óvart !!!!!

Ekki er maðurÍslenska sendiráðið rýmt
Innlent | mbl.is | 23.8.2011 | 19:01

Starfsmenn bandaríska fjármálaráðuneytisins standa við New... „Við fundum auðvitað fyrir honum. Hann var mjög sterkur. Þetta var svona langvarandi miðað við það sem maður á að venjast. Það sem maður hefur upplifað hingað til eru svona hvellir en mér fannst þessi standa svolítið lengi,“ segir Skafti Jónsson, sendiráðunautur í sendiráði Íslands í Washington í Bandaríkjunum.

Jarðskjálfti, sem mældist 5,9 stig, varð á austurströnd Bandaríkjanna í dag, en upptök hans voru 54 km frá Richmond í Virginíu og 139 km frá Washington. Var Pentagon, bygging bandaríska varnarmálaráðuneytisins í borginni, rýmd í kjölfar jarðskjálftans sem og hluti Hvíta

hússins og bandaríska þinghússins. Þá voru nokkrir skýjakljúfar rýmdir í New York þar sem skjálftinn fannst greinilega.

 

„Við erum hérna uppi á fimmtu hæð í húsi sem skókst mjög og það var bara rýmt eins og skot. Við vorum bara sett hér út á plan og þar var fólk bara að bera saman bækur sínar og ósköp rólegt,“ segir Skafti. Fólk hafi þó fljótlega fengið að snúa aftur inn í bygginguna.

Aðspurður segist hann ekki vita til þess að neitt eignatjón hafi orðið eða meiðsl á fólki vegna jarðskjálftans, hvorki íslenskum ríkisborgurum né öðrum, eftir því sem hann kæmist næst.

Bandaríska jarðeðlisfræðistofnunin sagði, að skjálftinn væri sá öflugasti, sem orðið hefði í Virginíu frá því í maí 1897 þegar jafnstór skjálfti varð í Gilessýslu.  

Svo virðist sem byggingar hafi staðið skjálftann af sér. Múrhúð hrundi af veggjum húsa í Washington og turnspírur, sem höfðu skemmst áður, hrundu af dómkirkjunni í borginni. Kirkjunni var lokað í kjölfarið á meðan skemmdir voru kannaðar nánar. /ekki er maður fróðari en svo að þetta væri hættusvæði jarðskjálfta,als ekki en lengi lærir maður ,það' er svo að þetta segja fræiðngar að svona geti komið fyrir kannski einu sinni á 100 árum,en það er svo að sennilega engin hefur lifað þetta þarna áður en það kemur i ljós,en við svona aðstæður er allt sett á fullt sem von er,en við Íslendingar eru þessu vön,en vonum bara að engir verði eftirskjálftar/Halli gamli


mbl.is Íslenska sendiráðið rýmt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband