Fylgdist með ferðum þingkonu/"Ljót er ef satt er " segir máltækið!!!

Fylgdist með ferðum þingkonu
Innlent | mbl.is | 26.8.2011 | 18:36

Siv FriðleifsdóttirLögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært fyrrverandi sambýlismann Sivjar Friðleifsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, fyrir að koma ökurita fyrir í bíl sem hún notaði. Með ökuritanum var hægt að fylgjast með ferðum bílsis þar til tækið uppgötaðist. 

Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld en þar sagði að þetta hefði gerst í fyrra. Það hefði komið Siv á óvart að maðurinn, Þorsteinn Húnbogason, virtist ávallt vita um ferðir hennar. Hún fann síðan ökuritann í bílnum og kærði málið til lögreglu.

Lögreglan hefur nú ákært Þorstein fyrir brot á fjarskiptalögum og fyrir brot á friðhelgi einkalífsins og verður ákæran þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 9. september nk.

Kom jafnframt fram í fréttum Stöðvar 2 að Þorsteinn hefði verið sóttur af talsverðu liði lögreglumanna til skýrslutöku á heimili sínu en hvorki hann né verjandi hans gáfu blaðamanni stöðvarinnar kost á viðtali. Þá vildi Siv ekki tjá sig um málið heldur.//þetta er ekki hægt að gera!!! og er algjörlega ósiðlegt og ólöglegt,kannski örðum  til viðvörunnar og það gott að þetta uppgvötaðist,óskinsamlegt og illa gert en svona er Ísland i dag/Halli gamli


mbl.is Fylgdist með ferðum þingkonu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045634

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband