Ólafur Ragnar skipti um skoðun/er það nokkuð til nem góðs að geta það,hefi ég oft gert og það bara gott að geta það ef tilgangur er góður!!!

Ólafur Ragnar skipti um skoðun
Innlent | mbl.is | 3.9.2011 | 8:25

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.Ólafur Ragnar Grímsson lýsti mikilli andstöðu við kaup útlendinga á landi á Íslandi árið 1991 þegar EES-samningurinn var til umræðu. Hann sagði hins vegar í samtali við Financial Times í gær að hann fagnaði kaupum kínversks fjárfestis á Grímstöðum á Fjöllum.

Þegar EES-samningurinn var til umræðu varð nokkur umræða um að samningurinn opnaði fyrir þann möguleika að útlendingar gætu keypt jarðir á Íslandi. Ólafur Ragnar var þá formaður Alþýðubandalagsins og lýsti mikilli andstöðu við þetta.

„Alþýðuflokkurinn hefur verið fylgjandi því að útlendingar ættu að hafa sama rétt og Íslendingar til að gerast bændur og kaupa jarðir hér á landi. Alþýðubandalagið hefur algerlega hafnað þessu innan ríkisstjórnarinnar, og Jón Baldvin [Hannibalsson] er mætavel kunnugt um það að ég mun aldrei samþykkja samning sem felur í sér að útlendingar geta keypt Laxá í Aðaldal eða Hvamm í Dölum,“ sagði Ólafur Ragnar í samtali við Þjóðviljann 13. apríl 1991.

Halldór Blöndal, þáverandi landbúnaðarráðherra, lýsti sömu viðhorfum í þingræðu um málið og nefndi þá Hvamm í Dölum sem dæmi um jarðir sem ekki mættu komast í eigu útlendinga. Halldór ítrekaði efasemdir sínar um að útlendingar fengu að eignast jarðir í grein sem hann skrifaði í Morgunblaðið í vikunni.

Ólafur Ragnar virðist hins vegar hafa skipt um skoðun því hann fagnaði áhuga Huangs Nubos á Grímsstöðum á Fjöllum í samtali við Financial Times. „Kínverjar og Indverjar réttu Íslandi hjálparhönd á margan uppbyggjandi hátt á meðan Evrópa var fjandsamleg og Bandaríkjamenn ekki til staðar,“ hefur blaðið eftir forsetanum.

Ólafur Ragnar sagðist ekki telja ástæðu til þess að óttast fjárfestingar Kínverja á Íslandi á meðan þær sættu nákvæmri skoðun og fagnaði áhuga Kínverja og Indverja á landinu á sama tíma og samskipti við hefðbundna bandamenn í NATO væru orðin stirðari.///það er engin verri fyrir það að skipta um skoðun að mínu áliti þegar það er í þágu þjóðar og betri málefna,ætli nokkur hafi t´ölu á skoðunarskiptum S.J.S. svo ég nefni bara dæmi ,það bæði til góðs og ills,Ólafur þarf ekkert að skammast sín þarna þetta synir bara réttsyni og ekkert annað,en svo eru auðvitað um þetta deilt/Halli Gamli


mbl.is Ólafur Ragnar skipti um skoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045699

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband