Snjókoma í Mývatnssveit/Já það lætur ekki á sér standa,þegar kólnar!!!

Snjókoma í Mývatnssveit
Innlent | mbl.is | 7.9.2011 | 19:41

Hvít jörð er á Mývatnsöræfum, eins og sést á vefmyndavél... „Það kyngir niður snjó, ég rétt sé niður á vatn. Fólk verður að skafa af bílrúðunum áður en það leggur af stað,“ segir Kristján Sævarsson á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit. Slydda og sjókoma er víða á Norðurlandi og hvít jörð á fjallvegum.

Á vefmyndvélum Vegagerðarinnar má sjá að slydda eða snjókoma hefur verið síðdegis í dag og í kvöld á fjallvegum norðanlands. Þannig virðist vera alhvít jörð á Víkurskarði og Mývatnsöræfumi. Þá er alhvít jörð við Öskju.

Er þetta fyrsti snjór haustsins. „Jú, þetta er full snemmt, sérstaklega þegar við urðum ekki mikið varir við sumarið,“ segir Kristján. Hann segir reyndar ekki langt síðan síðast snjóaði, hann hefði vaknað við alhvíta jörð morgun einn um miðjan júní.

Allmargir ferðamenn eru enn í Mývatnssveit. Kristján telur að þeir líti á þetta sem skemmtilega upplifun.

Búast má við því að snjórinn taki fljótt upp enda er blautt í honum. Draga á úr úrkomu á morgun, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands./það lætur ekki á sér standa þegar kólnar,að snjóar á heiðum og fjöllum,þegar haustar ,og það að vissu leyti gott fyrir bændur féð kemur niður og betra að ná því,ef að er ekki bara um of rok og snjókoma i byggð vonandi ekki alveg strax/en kemur það eigum við vist/Halli gamli


mbl.is Snjókoma í Mývatnssveit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband