Allt gert til að hindra greiðslufall/en er það ekki of seint,gripið inní ??????

Allt gert til að hindra greiðslufall
Viðskipti | mbl.is | 12.9.2011 | 9:21
Miðlarar við borð sín í kauphöllinni í Frankfurt í morgun.Michel Barnier, sem fer með málefni fjármálamarkaða í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sagði í dag að allt verði gert til að hindra að lönd á evrusvæðinu lentu í greiðslufalli. Ekkert lát er á verðfalli á evrópskum hlutabréfamörkuðum.

„Sumir ættu að halda ró sinni," sagði Barnier við blaðamenn í París þegar hann var spurður um verðhrunið í morgun. 

Fjárfestar óttast, að Grikkland sé á barni greiðslufalls og að það gæti leitt til nýrrar fjármálakreppu um allan heim líkt og gjaldþrot bandaríska bankans Lehman Brothers gerði í september 2008.

Þá eru einnig vangaveltur um að matsfyrirtæki muni lækka lánshæfiseinkunn franskra banka sem eiga mikið af grískum ríkisskuldabréfum.

Barnier sagðist vera þess fullviss að evrópskar fjármálastofnanir væru nógu sterkar til að mæta tímabundnum erfiðleikum.  Christian Noyer, seðlabankastjóri Frakklands, sagði í dag að sama hver þróunin yrði í Grikklandi gætu franskir bankar staðist það.

Allar helstu hlutabréfavísitölur álfunnar hafa lækkað mikið í morgun. CAC vísitalan í París hefur lækkað um rúm 4%, DAX vísitalan í Frankfurt um 2,8% og FTSE vísitalan í Lundúnum um 1,3%.  Norrænar vísitölur hafa einnig lækkað, C20 vísitalan í Kaupmannahöfn þó mest eða um 3,1%.///Manni hrís hugur við þessum aðgerðum sem virðast koma of seint að mínu mati og flestra,þetta er búið að búa um sig lengi og það ekkert nýtt ,þessi kreppa er að ríða þessu til falls vegna þessa að aðgerðir voru ekki réttar i byrjun als ekki,og við verum að skoða hvað við erum að gera þarna inn ,og hætta bara við ekki spurning,ekki  viljum við þurfa að borga þetta er það???/Halli gamli


mbl.is Allt gert til að hindra greiðslufall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045652

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband