Hafna tillögu ráðherra/þessi tillaga er arfavitlaus,og ekkert vit í henni !!!!!

Hafna tillögu ráðherra
Innlent | mbl.is | 12.9.2011 | 15:22
Íbúar Patreksfjarðar vilja betri veg.„Okkur líst mjög illa á þetta. Íbúar og sveitarfélögin á Vestfjörðum hafa hafnað þessari leið ítrekað,“ segir Ingimundur Óðinn Sverrisson, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar, um tillögu Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að endurbæta núverandi veg um Hjallaháls og Ódrjúgsháls.

Innanríkisráðherra hefur kallað fulltrúa Vestfirðinga og nokkurra stofnana á fundi að undanförnu til að reyna að finna lausnir á tengingu sunnanverðra Vestfjarða við þjóðvegakerfið. Vegagerðin lagði á sínum tíma til að farin yrði ný leið yfir Djúpafjörð og Gufufjörð, svokölluð B-leið. Landeigendur í Teigsskógi mótmæltu og að lokum ógilti Hæstiréttur úrskurð umhverfisráðherra vegna galla á umhverfismati.

Á fundi með samráðshópnum sl. föstudag lagði Ögmundur Jónasson til að farin yrði svokölluð D-leið sem felst meðal annars í því að vegurinn um Hjallaháls og Ódrjúgsháls verður lagaður. Jafnframt lýsir hann yfir stuðningi við að jarðgöng undir Hjallaháls verði sett í samgönguáætlun sem gilda á til 2022.

„Þetta er ekki það sem við viljum og langt í frá að hægt sé að kalla þetta samráð,“ segir Ingimundur Óðinn. „Þetta er bara endurvinnsla á gömlum hugmyndum sem búið er að hafna. Við höfum ekkert umboð íbúa til að gera málamiðlun um láglendisleið,“ segir hann.

Spurður hvaða kostir séu í stöðunni með láglendisleið segir Ingimundur Óðinn að þeir geri ekki upp á milli leiða sem tryggi styttingu leiðar og lagningu öruggs vegar á láglendi. Bendir hann á að Vestfirðingar hafi stutt tillögur Vegagerðarinnar um svokallaða B-leið en útiloki ekki aðrar leiðir sem geri sama gagn. ///Ef V.G. hefðu ráðið her um síðustu 20-40 ár væru vegir hérna bara ófærir og engin umferð um landið að mínu mati,þessu umkverfisvernd er löngu komi út i öfgar og hennar er að vernda, enn ekki skemma og eyðileggja vegaframkvæmdir als ekki,það liggur i augum  uppi hjá öllu sem sjá þetta og reyna, að þessi vegur þarna um teigaskóg er sá besti og ódýrasti,ekki spurning um það,en þessi tillaga Ögmundar er arfavitlaus,og engum til góða nema að vera á móti sem  V.G eru alltaf!!!!Halli Gamli


mbl.is Hafna tillögu ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045812

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband