Wenger: Verðum að vinna bikar í vetur/ Ég ætla bara að vona það !!!!!

Wenger: Verðum að vinna bikar í vetur
Íþróttir | mbl.is | 17.9.2011 | 8:51

Mikel Arteta og Per Mertesacker eru tveir af nýju mönnunum...Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, sagði á fréttamannafundi í gær að lið hans yrði að krækja sér í titil á þessu keppnistímabili og það væri ekki nóg að stefna á að ná aftur fjórða sætinu í úrvalsdeildinni. 
 

Arsenal byrjaði tímabilið afar illa, fékk eitt stig í fyrstu þremur leikjunum og tapaði þá 2:8 fyrir Manchester United á Old Trafford. Wenger keypti fimm nýja menn í kjölfarið og innbyrti fyrsta sigurinn um síðustu helgi, 1:0 gegn Swansea. Nú er hann kominn með sitt lið til Blackburn þar sem fyrsti leikur þessarar helgar hefst á Ewood Park klukkan 11.45.

"Nú byrjar þetta allt aftur vegna þess að við keyptum fimm nýja menn en það er ljóst að ég mun ekki sætta mig við að ná bara fjórða sæti í deildinni," svaraði Wenger spurningu um hvort hann yrði ánægður með að ná sama sæti og á síðasta tímabili.

„Hve langan tíma hefur maður til að byggja upp á nýtt? Í dag er enginn tími. Það er vissulega erfitt að fást við að byggja upp og þurfa að uppfylla væntingar á sama tíma. Ég veit ekki hvort stuðningsmenn okkar ur dáendskilja það en ég vil bara gera þá ánægða og það gerir maður með því að vinna leiki. Við munum gera allt til þess," sagði Wenger sem hefur ekki náð að vinna titil með Arsenal í sex ár.///við skulum bara vona það ,Arsenal aðdáendur og stuðningsmenn!!þetta kemur fljótt nú þegar þetta gamla góða lið nær sér á strik,sem fer að smella saman,ef af vonum verður/Halli Gamli


mbl.is Wenger: Verðum að vinna bikar í vetur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband