Þingi slitið/ einu leiðinlegatsa sem haldið hefur verið að mínu mati!!!!!

Alþingi var slitið rétt fyrir klukkan 18.00. Þá höfðu þingmenn samþykkt ný sveitarstjórnarlög með 42 samhljóða atkvæðum en einn greiddi ekki atkvæði. Einnig voru lög um greiðsluþjónustu samþykkt en afgreiðslu þingsályktunartillögu um heimild til staðgöngumæðrunar var frestað til næsta þings.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði að sveitastjórnarlögin væru vitnisburður um gott samstarf sveitarfélaganna í landinu og Alþingis og verið væri að stíga stór framfararskref.

Þá voru lög um greiðsluþjónustu samþykkt með 43 samhljóða atkvæðum. Einn greiddi ekki atkvæði.

Einnig var ákveðið að þingsályktunartillaga um heimild til staðgöngumæðrunar skyldi lögð fram að nýju í upphafi nýs þings í október. Ragnheiður Elín Árnadóttir, flutningsmaður tillögunnar, sagðist vera óþreyjufull að sjá hvernig Alþingi Íslendinga tæki á því álitamáli hvort heimila eigi staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni.

„Ég er hundfúl yfir því að þetta mál komi ekki til lokaafgreiðslu í dag,“ sagði hún og bætti við að hún skyldi sjá til þess að málið yrði lagt fram í upphafi þingsins og að málinu yrði gefinn sá tími sem þurfi til að ólík sjónarmið og skoðanir fái að koma í ljós.

„Septemberfundirnir hafa verið átakameiri en flestir áttu von á,“ sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, skömmu áður en þinginu lauk laust fyrir kl. 18. Hún talaði um að stutt væri til nýs þings, 140. löggjafarþings, sem muni marka skil í starfsháttum Alþingis og hét hún á þingmenn að sameinast um að tryggja árangursríka framkvæmd þeirra./////Einu leiðinlegasta septemberþigi sem haldið hefurn  verið í mínum mynnum er lokið með afgerandi leiðindum og bara níðingsskap!!! sem unnin er á lýðræðinu einræði Forsætisráðherra í stjórnarráðsmálum,að stæðustum hluta,og yfirgangi einnig Forseta sameinað þings sem veldur ekki að vara Forseti als Alþingis heldur bara meirihlutans,þetta verður lengi í mynnum haft að minnihluta stjórn fólksins í landinu kaupi menn til fylgis við einræðið//Halli Gamli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband