Styðja ákvörðun um að hlífa Teigsskógi/ þessir umhverfissinar að taka völdin,þeir eiga landið einir????

Styðja ákvörðun um að hlífa Teigsskógi
Innlent | mbl.is | 22.9.2011 | 10:24

Mynd 577655 Samtökin Landvernd, Fuglavernd og Náttúruverndarsamtök Íslands lýsa yfir stuðningi við þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, að hlífa Teigsskógi og leggja til vegagerð eftir svokallaðri D-leið í Gufudalssveit með göngum undir Hjallaháls.

Segja samtökin, að þessi leið hafi verið samþykkt af Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra og því sé ekkert til fyrirstöðu að ráðast í hana og bæta þannig strax úr brýnni þörf Vestfirðinga á betri samgöngum með láglendisvegi.a

Með þessari úrslausn yrði komið í veg fyrir þau miklu náttúrspjöll sem myndu hljótast af leið B um óspillta náttúru, m.a. eftir Teigsskógi endilöngum og yfir eyjar og sker í mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar í nágrenni tveggja arnarsetra.

Samtökin segjast telja óréttlætanlegt að fórna þessum náttúruverðmætum, sem séu á náttúrminjaskrá, og falli undir lög um verndun Breiðafjarðar, þar eð aðrar leiðir séu fyrir hendi. Göng undir Hjallaháls séu að öllum líkindum ódýrari en leið B þegar búið er að taka tillit til aukakostnaðar, jaðarkostnaðar og umhverfiskostnaðar.////sjálfsgat er að hlífa skóginum ef það er hægt,og hægt er að fara leið, sem er jafn ódyr ,það viðist hægt að gera og þá bara gert og hætta þessu þrasi,ég er umkverfissini en samt verður að meta hlutina við hvert tækifæri,en þessi umræða er og af fara bara framkvæma bestu leiðnina sem hægt er að fara án skemmda á sem mynnstu//Halli gamli


mbl.is Styðja ákvörðun um að hlífa Teigsskógi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef ekki komið í Teigsskóg en séð myndir þaðan. Þar virðist vera rúmlega einbreiður malarslóði/vegur í gegn og varla mikið rask að breikka hann aðeins.

Gaman væri að heyra frá þeim sem til þekkja um hvort verið sé að ræða að fara þá leiðina.

Dagga (IP-tala skráð) 22.9.2011 kl. 11:45

2 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Þetta er komið út fyrir velsæmismörk.

Nokkrar aumar hríslur og slatti af kjarri.

Hefur vegur á Hallormsstað gert illt?

Nei

Hefur vegurinn undir hafnarfjalli gert skóglendi þar illt?

Nei.

Hefur vegurinn um Þingvelli gert illt?

Nei.

Á ekki barasta að kvetja fólk til að flytja frá Vesturlandi svo ekki verði hreyft þar við "viðkvæmum gróðri"?

Óskar Guðmundsson, 22.9.2011 kl. 13:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband