Ísland 17. mesta fiskveiðiþjóðin/ það gott ef ekki er það eyðilagt !!!!!

Ísland 17. mesta fiskveiðiþjóðin
Innlent | mbl.is | 22.9.2011 | 10:12

 Ísland er sautjánda umsvifamesta fiskveiðiþjóð heims með 2% af heildarafla. Sjávarafurðir eru um 39% af heildarvirði útflutningsvara landsins en um 25% af heildarvirði útflutnings og þjónustu. Samanlagt virði útfluttra sjávarafurða var 220 milljarðar króna á síðasta ári.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íslandsbanka um sjávarútveg á Íslandi en bankinn telur, að útflutningsverðmæti muni halda áfram að aukast.

Í skýrslunni kemur fram, að sjávarútvegur var um 11% af vergri landsframleiðslu árið 2010. Evrópa er stærsti markaðurinn fyrir íslenskar sjávarafurðir, með um 80% hlutdeild og þorskur er verðmætasta fisktegundin, með um 33% af heildarútflutningsverðmæti sjávarafurða.

Góð framlegð var af rekstri sjávarútvegsfyrirtækja árið 2009 og 2010 og horfur 2011 eru góðar, að mati bankans.

Um 87% af árlegum úthlutuðum kvóta eru á hendi 50 stærstu fyrirtækjanna. Um 8600 manns starfa beint í sjávarútvegi á Íslandi eða um 5,2% af heildarvinnuafli. ////þessu megum við ekki glata með eyðileggingu á fiskveiðveiðunum sem nú er í bigerð als ekki,við erum þarna í góðum malum þegar búið að að skera agnúana af og gera þetta betra en hefur verið.en ekki bylta,svo og auka kvótann töluvert meðan illa árar/Halli Gamli 


mbl.is Ísland 17. mesta fiskveiðiþjóðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 1045641

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband