Auglýst eftir saksóknurum/ hvað eiga þeir að gera ?????

Auglýst eftir saksóknurum
Innlent | mbl.is | 22.9.2011 | 16:32

Sigríður Friðjónsdóttir er ríkissaksóknari Innanríkisráðuneytið auglýsir embætti tveggja saksóknara hjá embætti ríkissaksóknara laus til umsóknar. Miðað er við að innanríkisráðherra skipi í embættin frá og með 1. nóvember 2011.

Saksóknarar eru ríkissaksóknara til aðstoðar en ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvalds. Saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara er skipaður til fimm ára og skal fullnægja sömu lagaskilyrðum og héraðsdómari til skipunar í embætti.

Ráðuneytið kann að spyrja um fjárhag umsækjenda

Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um, eftir því sem við á: 1) menntun og hvort umsækjandi hafi í námi sínu sérstaklega lagt sig eftir refsirétti og/eða sakamálaréttarfari, 2) reynslu af sakamálaréttarfari, saksókn mála og/eða annarri meðferð ákæruvalds, 3) reynslu af dómstörfum, 4) reynslu af lögmannsstörfum, 5) reynslu af stjórnsýslustörfum, 6) reynslu af frásarvíkinga æðistörfum, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtist í embætti saksóknara, 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar sem snúa að andlegu atgervi, áræði, mannlegum samskiptum og sjálfstæði, 10) upplýsingar um þrjá núverandi eða fyrrverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem geta veitt upplýsingar um störf, samstarfshæfni og aðra hæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf saksóknara.

Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum skulu umsækjendur gefa upp tölvupóstfang sem notað verður til að eiga öll samskipti við umsækjendur. Taka skal fram að ráðuneytið kann að óska eftir upplýsingum frá umsækjendum um fjárhag þeirra og hagsmunatengsl sem kunna að hafa áhrif á almennt og sérstakt hæfi saksóknara.///Þetta er auðvitað full þörf er það ekki?? maður bara spyr,ekkert gengur hjá hinum bara þref og ekkert gerist annað en eitthvað sem engin skilur,nema það sjálft,saksónarar gera ekkert ef allt er varið í bak og fyrir,ein og dæmin sanna ,sem við höfum fyrir okkur,hvernig er með alla þessa útrásarvíkinga sem átti að knésteðja og kostnaðinn bak við það??engin fundin sekur en og allir lifa þeir sældarlífi á illa fengnu fé margir allavega,það var svo mikið sem átti að gera en ekki gert,það er málið en okkur er haldið í trúnni að eitthvað sé að ske/Halli Gamli


mbl.is Auglýst eftir saksóknurum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband