Viðskipti | mbl.is | 22.9.2011 | 12:44
Marel hefur skrifað undir samning við kínverska fiskvinnslufyrirtækið Pacific Andes um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á nýju vinnslukerfi fyrir hvítfisk. Verður línan sett upp í vinnslustöð fyrirtækisins í Qingdao.
Kerfið er byggt á nýrri hönnun og er leitt af Marel í samvinnu við Skagann á Akranesi og 3X Technology. Kerfið spannar m.a. uppþýðingu, meðhöndlun fiskikera, kælingu, flokkun og snyrtingu og uppfyllir hæstu kröfur um gæðaeftirlit og rekjanleika.
Þetta er fyrsta uppsetning á nýrri flæðilínu sem er hönnuð til að hámarka sjálfvirkni í afkastamiklum vinnslustöðvum á hvítfiski eins og Alaska-ufsa og eldishvítfiski eins og tilapia og pangasius, segir Kristmann Kristmannsson, sérfræðingur í fiskiðnaðarsetri Marel, í fréttatilkynningu.
Náið samstarf Marel við Skagann og 3X Technology hefur gert okkur kleift að samþætta sérþekkingu þessara fyrirtækja og afhenda heildarlausn sem uppfyllir ströngustu kröfur viðskiptavinarins. Væntanlegur ávinningur fyrir Pacific Andes felst m.a. í auknum gæðum, afköstum, lægri framleiðslukostnaði, hraðara gegnumstreymi og markvissari stjórnun á hitastigi vinnslunnar, sem dregur úr hættunni á bakteríusýkingum og gerir fyrirtækinu kleift að keppa á mörkuðum eins og í Ameríku og Evrópu. Þar að auki bætir línan vinnuaðstöðu starfsfólks verulega, segir Kristmann.
Marel hefur markvisst verið að byggja upp sterkt teymi í Kína á undanförnum árum og hefur einkum lagt áherslu á hvítfisk í norðurhluta landsins og eldisfisktegundir eins og tilapia í suðurhlutanum. Þessi samningur markar tímamót í þeirri vinnu og við erum virkilega ánægð með að vera að vinna að svo spennandi verkefni með fyrirtæki á borð við Pacific Andes, sem er eitt af allra stærstu fiskvinnslufyrirtækjum heims, segir Kristmann að lokum.
Fiskvinnsla í Kína hefur hingað til byggt að verulegu leyti á mannafli. Meðal fiskvinnslufyrirtæki í Kína er með 4.000-12.000 manns í vinnu. En nú þegar hagkerfið er í hröðum vexti stendur greinin frammi fyrir aukinni samkeppni um vinnuafl.
Uppsetningin í Qingdao er fyrsta skrefið í átt að fullri vélvæðingu og sjálfvirkni fyrir stærstu hvítfiskvinnslustöð Kína. Pacific Andes hefur þegar kynnt áform um að uppfæra búnaðinn í öðrum vinnslustöðvum fyrirtækisins með svipuðum lausnum frá Marel ef línan í Qingdao reynist vel.////Við eigum að hafa samvinnu við Kína ekki spurning eins marga og við getum!! en megum við það?? hvað bannar viðskipti þarna á heiðarlegum grunni,jafnvel sölu á landi sem er í farvatninu og eigum við að skoða það vel,ef þessi auðmaður vill hlíta íslenskum lögum í hvívetna,og byggja upp ferðamannaiðnað annan en puttafarþega,það er eins með þessi fiskvinnslufyrirtæki okkar og framleiðslu fyrir þau það er fundið fé///Halli Gamli
Marel semur við kínverskt fyrirtæki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.