Ber til baka frásögn Evrópuþingmanns/ekki þá alveg,annar samstarflokkurin er á móti!!!

Ber til baka frásögn Evrópuþingmanns
Innlent | mbl.is | 25.9.2011 | 16:14
Jón Bjarnason. Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir í yfirlýsingu að hann hafi ekki látið nein orð falla á fundi með evrópskum þingmönnum um að hann myndi ekki veita heimild um að fram færu viðræður um landbúnaðar- og sjávarútvegskafla aðildarviðræðna við Evrópusambandið.

Fréttastofan Agence Europe hafði í gær eftir rúmenska Evrópuþingmanninum Cristian Dan Preda, að á fundi með evrópskum þingmönnum á Íslandi hefði Jón sagt hreint út, að hann myndi ekki veita neina heimild til viðræðna um landbúnaðar- og sjávarútvegskaflann, einfaldlega til að stöðva viðræðurnar.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu í dag:

„Morgunblaðið birti í gær frétt þar sem vitnað er til orða sem evrópuþingmaðurinn Christian Dan Pedra átti að hafa látið falla  eftir fund evrópskra þingmanna með undirrituðum í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu þann fyrr í mánuðum.

Þar segir Dan Pedra um orð undirritaðs:

„Hann [Jón Bjarnason] sagði við okkur mjög opinskátt að hann myndi ekki veita heimild til að fram færu viðræður um landbúnaðar- og sjávarútvegskaflann, beinlínis í þeim tilgangi að stöða viðræðurnar."

Af þessu tilefni er rétt að það komi fram að engin þau orð féllu á fyrrnefndum fundi sem gefa tilefni til þeirrar fullyrðingar sem hér birtist. Þvert á móti fullvissaði ég hina evrópsku þingmenn um að þrátt fyrir að annar stjórnarflokkanna væri andvígur aðild ynnu öll ráðuneyti ríkisstjórnarinnar að aðildarumsókninni í samræmi við ákvörðun Alþingis.

Þegar hinsvegar kemur að kröfunni um aðlögun íslenskrar stjórnskipunar að ESB meðan á samningum stendur er aftur á móti ljóst að þingmenn og ráðherrar VG standa þar í móti enda er það ekki í samræmi við samþykkt Alþingis. Þessu gerði ég hinum erlendu þingmönnum grein fyrir.

Af málflutningi margra  evrópskra gesta sem hingað hafa komið er ljóst að þeir telja að fyrirfram aðlögun Íslands að ESB sé ekki aðeins sjálfssögð heldur forsenda áframhaldandi viðræðna. Þar með jafngildir það í þeirra huga stöðvun aðildarferlis að standa á móti aðlögun.
 
Sem ráðherra er mér skylt að leggja samþykkt Alþingis til grundvallar og sama ber öðrum ráðherrum að gera. Í þessu máli er hafið yfir allan vafa að fyrirfram aðlögun að ESB áður en kosningar um málið hafa farið fram gengur gegn samþykktum Alþingis og er því ekki fær leið nema þingið taki málið fyrir að nýju.

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra"
/////af hverju þarfa ð fara með málið i hring,þetta er svarið að annar stjórnarflokkunin er á móti er það ekki svarið??? Maður bara spyr en að ver að verja þetta er með eindæmum og þó allat ferlið er svona haltu mer slepptu mér,Það þíðir ekki fyrir Jón  Bjarnson að vera að bera þetta til baka ,þetta er staðreynd!!!!Halli gamli


mbl.is Ber til baka frásögn Evrópuþingmanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045683

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband