Verðbólguhvetjandi verðtrygging/þetta er að verða þjóðarskömm!!,afnemum hana!!!!

Verðbólguhvetjandi verðtrygging
Innlent | mbl.is | 28.9.2011 | 16:33
Andrea J. Ólafsdóttir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna. „Þessi vísitala ætti í raun og veru ekki að vera mælikvarði á höfuðstólshækkanir lána. Ef að vilji löggjafans er að tryggja lánin fyrir rýrnun gjaldmiðils er þetta ekki rétta vísitalan til að miða við,“ segir Andrea J. Ólafsdóttir formaður stjórnar Hagsmunasamtaka heimilanna.
Vísitala neysluverðs  hækkaði um 0,63% í september og hefur vísitalan þá hækkað um 5,7% síðustu 12 mánuði og um 1% síðustu þrjá mánuði sem jafngildir 4,1% verðbólgu á ári. Er þetta mesta 12 mánaða verðbólga sem mælst hefur frá því í júní árið 2010, segir í nýjum tölum frá Hagstofunni.

„Framkvæmd verðtryggingarinnar, með því að bæta alltaf við viðbótarláninu með því að greiða ekki  verðbætur  mánaðalegar heldur lána þær áfram, gerir það að verkum að bankar og fjármálastofnanir skrifa eigur sínar hærri inn í bækur sínar. Að okkar mati gerir það að verkum að peningamagn í umferð eykst, því lánamöguleikar þeirra aukast. Þeir geta lánað meira peningamagn með því að skrifa þetta í bækur sínar, þannig eykst peningamagn í umferð og það veldur verðbólgu,“ segir Andrea og bætir við að verðtryggingin eins og hún er í dag sé verðbólguhvetjandi en ætti ekki að vera það ef að rétt væri með farið.

„Það þarf að koma í veg fyrir eða leiðrétta það hvernig verðtryggð lán eru framkvæmd og það þarf að gerast strax. Það þarf semsagt að  afnema verðtryggingu á neytendalánum og/eða í það minnsta að framkvæma hana rétt,“ segir Andrea.////oft hafa margir haft fáum meira að þakka en þessum hagsmunasamtökum heimilanna,sérstaklega henni Andreu J.Ólafsdóttir formanni samtakana!!! en við erum orðin mörg og alltaf að stækka hópurinn sem vill að  afnema vertryggingu að mesti eða breyta og svo einnig lækka skuldirnar sem heimilin þurfa að borga vegna hækkunar kreppunnar sem við' getum ekki borgað það gerist smátt og smátt ,og  flestir missa sitt og bankarnir eignast það án bóta !!!!en þessu verður að linna og við að standa saman öll þjóðinn á móti þessu  gjörningi bankana og ríkisstjórnar vorar,við skulum geta það ef saman stöndum við!!!!/Halli gamli


mbl.is Verðbólguhvetjandi verðtrygging
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband