Kostir og gallar ESB-aðildar/þar er einmitt hundurnn grafin,eiginlega ósynilegar!!!

Kostir og gallar ESB-aðildar
Innlent | mbl.is | 30.9.2011 | 7:34
Erfiðast verður að ná sáttum um sjávarútvegsmál í viðræðunum við ESB. „Samanborið við íslensku krónuna er evran eins og klettur í hafinu,“ er haft eftir Gylfa Arnbjörnssyni, forseta ASÍ, á vef BBC í gær. Þar er m.a. fjallað um endurreisn íslenska hagkerfisins og mögulega

Í greininni, sem skrifuð er af Paul Henley, er einnig haft eftir Gylfa að hann trúi því að það sé vinnandi fólki í hag að Ísland gangi í ESB, að hluta til vegna þess að landið er þegar aðili að EES en einnig vegna þess að „stöðugleiki evrunnar er slíkur að hann er ákjósanlegri en gengisflökt okkar eigin gjaldmiðils.“

„Síðastliðin 50 ár á Íslandi hefur krónan verið notuð til að flytja auðmagn, á hverjum tíu árum eða svo, frá verkafólkinu til atvinnurekendanna, fyrirtækjanna,“ er einnig haft eftir Gylfa.

Í greinni segir að kannanir hafi sýnt að flestir Íslendingar séu á móti Evrópusambandsaðild og m.a. haft eftir fjármálaráðherra, Steingrími J. Sigfússyni, að stærð landsins hafi verið veigamikill þáttur í endurreisn hagkerfisins. „Þú ert fljótari að snúa við litlum bát en stóru skipi,“ segir Steingrímur.

Fiskveiðar og einangrun

„Íslenskir veiðimenn vilja halda vinnunni sinni,“ segir Sigmar Óskarsson, íslenskur veiðimaður, í samtali við BBC, en í greininni kemur fram að sjávarútvegurinn sé helsti ásteytingarsteinninn í aðildarviðræðunum.

Þar segir enn fremur að íslenskir aðilar hafi fjárfest talsvert í sjávarútvegi í Evrópu, þá helst í Bretlandi og Þýskalandi, en útlendingum sé á sama tíma bannað að fjárfesta í stórum stíl í íslenskum sjávarútvegi. Ekki sé um jafnræði að ræða í þeim málum.

Hugsanlega verði þó einstök einangrun Íslands innan Evrópu það verðmæti sem Íslendingar muni ekki vilja gefa upp á bátinn.

„Við tökum því sem sjálfsögðum hlut að við fáum sérmeðferð, ólíkt öðrum þjóðum. Við verðum alltaf krakkinn sem er útundan í bekknum af því að við erum svo lítil. Við erum ekki það mikilvæg. Við segjum: Þú getur ekki gert þetta, þú getur ekki tekið fiskinn okkar,“ er haft eftir Baltasar Kormáki, leikara og leikstjóra.

„Það er erfitt að berja á þeim sem virðist vera of veikburða til að vera laminn,“ bætir hann við.

Greinina í heild sinni er að finna á vef BBC.

aðild Íslands að Evrópusambandinu///Gylfi sem er fyrir ASÍ og  formnaður á að vara þarna mjög svo varfærin, en ekki bara reka áróður á ESB heldur segja sannleikan,en hann er ekki svona að allt verði svo gott það er bæði kostir og gallar og við sem ekki viljum þarna inn fullyrðum að það verra sé með því óaðgengilega!!! það er svo að við fáum ekki lægri vexti ekki breytingar á Sjalfrúvegsmalum og heldu ekki landbúnaðarmalum,svo er ástandið þarna ekki til fyrirmyndar ,segja svo að landbúnaðurinn sé a'ð drepa okkur peningalega með styrkjum og hækkunum,sem Formaður stettasambands  Bænda reif niður i gær!! en Gylfi er samfylkingamaður og bull þarna inn,en við látum ekki þennan áráður hafa áhrif!!!!vijum  hafa sannleikan og ekkert annað/Halli gamli

mbl.is Kostir og gallar ESB-aðildar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.9.2011 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 1045632

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband