Óheiðarlegur og ósanngjarn rógburður/Trúir nokkur orðið orðum Gylfa ?????

Óheiðarlegur og ósanngjarn rógburður
Innlent | mbl.is | 29.9.2011 | 23:49
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segist aldrei hafa lent í jafn óheiðarlegum og ósanngjörnum rógburði af hálfu nokkurs manns og Vigdísar Hauksdóttur, alþingismamans.

..Gylfi segir á vef ASÍ, að Vigdís hafi þráfaldlega og ranglega haldið því á lofti að henni hafi verið sagt upp störfum þegar hún ákvað að leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjarvíkurkjördæmi suður fyrir alþingiskosningarnar 2009, síðast í grein í Morgunblaðinu í dag.

Í greininni segir Vigdís, að allir viti um langvarandi tengsl ASÍ og Samfylkingarinnar. Þegar ég fór í framboð fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík var mér umsvifalaust sagt upp störfum sem lögfræðingur ASÍ eftir 5 mánaða störf hjá samtökunum. Ástæðan – jú hagsmunaárekstrar við stefnu ASÍ," skrifar Vigdís.

 

„Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki áður lent í jafn óheiðarlegum og ósanngjörnum rógburði af hálfu nokkurs manns," skrifar Gylfi á vef ASÍ. Ég tel mig ekki hafa gert neitt annað en að koma fram við Vigdísi Hauksdóttur af vinsemd og virðingu. Eins og ég hef áður vikið að, hafði ég frumkvæði að því að fá Vigdísi til starfa haustið 2008 og gekk ég svo langt að gefa ekki öðrum tækifæri á að kynna sig eða sín störf. Auðvitað vissi ég og forysta ASÍ af því að Vigdís var virk í starfi Framsóknarflokksins.

Nokkrum mánuðum eftir að Vigdís kom til starfa stóð henni til boða að sækja námskeið til lögmannsréttinda og fékk námsleyfi til að hún gæti öðlast þau. Það leyfi var launað þó hún hefði ekki áunnið sér rétt til þess. Það var í þessu launaða leyfi sem Vigdís vann að því að undirbúa sína pólitísku framtíð. Þegar hún hafði landað oddvitasætinu í öðru Reykjarvíkur kjördæmanna óskaði hún sjálf eftir því að fá að láta af störfum þegar í stað  og án þess að bera nokkrar skyldur gagnvart þeim samtökum sem höfðu nokkrum mánuðum áður ráðið hana í vinnu. Var það samþykkt og henni óskað velfarnaðar í því starfi, sem hún hafði valið sér.

Öðrum dylgjum og rógburði um störf mín og þau samtök sem ég er í forystu fyrir hirði ég ekki að svara. Málflutningur Vigdísar í þeim efnum er í fullu samræmi við þann ótrúverðuga stíl sem hún hefur valið sér í opinberum málflutningi og er ekki svara verður," segir Gylfi á vef ASÍ.///maður getur náttúrlega ekki sagt til um orð fólks svona maður á móti manni ,en eftir allar yfirlýsingar Gylfa undanfarið sem eru á sama meið og hjá Jóhönnu ráðist a´allt og alla og kenna þessu og hinum um hlutina er maður skelelskur á að kall segi nokkuð satt!! frekar enn Forsætisráðherra enda i sama flokk!! Gylfi geturekki leikið þennan leik áfram að tala tungum tveim,það er svo að við sem heyrum undir ASÍ eru búin að fá nóg af þessu kjaftæði um sértaklega landbúnað sem hann vill  feigan ef el er eftir tekið/Halli gamli


mbl.is Óheiðarlegur og ósanngjarn rógburður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband