Vill viðskiptaþvinganir gegn Íslandi/já bara tökum því!!Silgdum við ekki með fisk í kjaftinn á þeim öll stríðárin??

Vill viðskiptaþvinganir gegn Íslandi
Innlent | mbl.is | 6.10.2011 | 17:58
Mynd 490587„Eins vingjarnlegir og Íslendingar kunna að líta út fyrir að vera þá virðast þeir hafa þá afstöðu til náttúruauðlinda sem grimmdarleg og eigingjörn. Andstaða þeirra við að hætta að drepa hvali er bestþekkta dæmið um þetta,“ segir breski þingmaðurinn Barry Sheerman.

Sheerman, sem situr á breska þinginu fyrir Verkamannaflokkinn, segist hafa verið staddur hér á landi nýverið í þeim tilgangi að sjá norðurljósin. Hann segir að sér hafi verið tekið vel af þeim Íslendingum sem hann hafi hitt en fer síðan hörðum orðum um  íslensku elítuna sem hafi kostað Breta háar fjárhæðir. Í stað þess að greiða þær til baka skýli þessir aðilar sér á bak við þjóðaratkvæðagreiðslur þar sem Íslendingar hafi verið spurðir að því hvort þeir vildu greiða skuldir sínar.

„Það er nógu slæmt að vera boðið þetta "gómsæti" á sérhverju veitingahúsi og heyra það réttlætt á þeim forsendum að um sé að ræða fátækt land í miðju Atlantshafinu sem þurfi að halda áfram að veiða hvali til þess að lifa af,“ segir Sheerman. „Alþjóðasamfélagið ætti sannarlega að grípa núna til harðra aðgerða í því skyni að koma vitinu fyrir Íslendinga og koma á hörðum viðskiptahindrunum þar til þeir breyta hegðun sinni og sýna að hægt sé að treysta þeim.“///er þetta þakklætið fyrir að við sigldum með fisk i kjaftinn á þeim öll stríðsárinu og hafði jafnvel áhrif, á sigur styrjaldar??en misstum miða við haustölu eins marga,í sjóinn og þeir i stríðinu,vegna þessa,þar misstum við föður  okkar fjölskyldan mín,en það er svo að það sem vel er gert geymist, i eigin hagsmunum/Halli gamli 


mbl.is Vill viðskiptaþvinganir gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halli minn. Ég bið almættið algóða að hjálpa þessum blessaða þingmanni, því ekki getur bankarændur íslenskur almenningur hjálpað þessum villuráfandi Breska þingmanni á rétta braut meðan hann talar fyrir þessum fáránlegu fullyrðingum.

Þessi blessaði þingmaður hefur greinilega ekkert vit á hvalveiðum né sjávarlífríkinu, frekar en restin af því áróðursfólki sem segist allt vita um hvalveiðar og líf-réttindi hvala umfram réttindi annarra skepna á jörðinni, eins og til dæmis líf-réttindi mannskepnanna!

Hvar eru manneskju-friðunar-samtökin, og hvaða Breta-þingmaður berst fyrir að friða mannskepnur?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.10.2011 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045718

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband