Hríðarveður í kvöld og nótt/það er svo að veturinn er að koma,kemur á laugardag!!!!

Hríðarveður í kvöld og nótt
Innlent | mbl.is | 16.10.2011 | 17:30
Mjög blint verður með köflum á Steingrímsfjarðarheiði,... Gert er ráð fyrri hríðarveðri í kvöld og nótt á Vestfjörðum og fjallvegum á vestanverðu Norðurlandi. Ekki er búist við samfelldri ofankomu heldur fremur að það verði éljagangur.

Þetta kemur fram í athugasemdum veðurfræðings í tilkynningu Vegagerðarinnar um færð.

Þar segir að mjög blint verði með köflum á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og Klettshálsi, en á þessum vegum verði vindhraðinn um og yfir 20 metra á sekúndu.  Heldur hægari á Bröttubrekku, Holtavörðuheiði, Vatnsskarði og Þverárfjalli, en þar sé engu að síður smám saman versnandi veður í kvöld.

Él til fjalla við Eyjafjörð og þar austur af í nótt, en frostlaust á láglendi.  Á Fjarðarheiði og efst í Oddskarði megi gera ráð fyrir krapahríð undir morgun norðnorðaustanátt um 15-18 metra á sekúndu , en bleyta á lægri fjallvegum eystra og eins í byggð.

Að sögn Vegagerðarinnar er hálka éljagangur á Fróðárheiði á Vesturlandi.

Á Vestfjörðum er snjóþekja, hálka og éljagangur á fjallvegum og víða hálkublettir á láglendi. Hrafnseyrarheiði er ófær vegna snjóflóða.

 Á Norðurlandi er hálka og éljagangur á  Þverárfjalli, hálkublettir á Vatnsskarði og hálka á Öxnadalsheiði.

Austanlands eru hálkublettir á Möðrudalsöræfum, Fjarðarheiði, Oddskarði, Breiðdalsheiði og Öxi og þar er einnig éljagangur.///við erum öllu vön flest ekki öll, og kippum okkur ekki upp við vetraveður samt er skilda á vetradekkjum ekki firr en 1 Nóvember,en það er svo að þetta virðist alltaf koma á óvart,en þetta er ekkert grín og ber að taka alvarlega mjög!!!!Halli gamli


mbl.is Hríðarveður í kvöld og nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband