49% Breta segjast vilja úr ESB/ manni finnst þetta engin furða!!!!!

49% Breta segjast vilja úr ESB
Erlent | mbl.is | 24.10.2011 | 18:28
Fánar Evrópusambandsins blakta utan við höfuðstöðvar...Um 49% Breta segjast hlynnt úrsögn úr Evrópusambandinu á meðan 40% þeirra vilja vera áfram innan sambandsins. Þetta er niðurstaða könnunar sem gerð var á vegum breska blaðsins The Guardian en þar kemur fram að 70% kjósenda vilja fá að kjósa um aðild að ESB.

Könnun Guardian er birt á sama tíma og tekist er á í breska þinginu um tillögu þingmanns íhaldsmanna um að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu  árið 2013 um hvort Bretland eigi að vera áfram innan ESB, yfirgefa það eða krefjast nýrra aðildarviðræðna með endurskoðun skilmála.

Kosið verður um tillöguna kl. 21 í  kvöld að íslenskum tíma en David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hefur biðlað til þingmanna sinna um að greiða atkvæði gegn tillögunni. Þingmönnum Frjálslyndra demókrata og Verkamannaflokksins hefur einnig verið skipað að greiða atkvæði gegn tillögunni.  Þegar hefur 61 þingmaður íhaldsmanna lýst yfir stuðningi við tillöguna og nú er spurningin sú hvort þeir fari gegn vilja flokksins sbr. frétt BBC. Heimildir AFP herma að á milli 60 og 100 þingmenn af 305 þingmönnum íhaldsmanna hafi ákveðið að ganga gegn vilja Cameron og greiða atkvæði með tillögunni.

Cameron hefur sagst hafa skilning á tillögunni en hins vegar telur hann tímasetninguna ranga vegna evruvandans.///Manni undrar þetta ekki ,þetta er að fara með allar þessar þjóðir og Bretar hefðir útundan, eins og við sjáum að, Frakkar og Þjóverjar stjórn þessu algjörlega!!! enda allt þarna á huldu ??svo erum  við að sækast eftir að komast þarna inn!!!Halli gamli


mbl.is 49% Breta segjast vilja úr ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045679

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband