24.10.2011 | 21:11
Merki um sambandsleysi við hjartslátt þjóðarinnar//Jóhanna veit hvað hún syngur?????
Merki um sambandsleysi við hjartslátt þjóðarinnar
Innlent | mbl.is | 24.10.2011 | 16:41
Hagsmunasamtök heimilanna segjast velta því fyrir sér hvort sú staðreynd að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafi hvorki minnst á afnám verðtryggingar né leiðréttingu lána í setningarræðu sinni á landsfundi Samfylkingarinnar sé til marks um sambandsleysi við hjartslátt þjóðarinnar.
HH segja að verði ekki orðið við fyrrgreindum kröfum samtakanna fyrir 1. janúar 2012 jafngildi þær undirskriftir sem safnað er slóð samtakanna kröfu um þjóðaratkvæðagreiðslu um kröfugerðina.
HH vísa til viljayfirlýsingar sem þau sendu forsætisráðherra 6. október þar sem samtökin settu það skilyrði fyrir samstarfi að rætt yrði saman og komist að sameiginlegri niðurstöðu um nálgun við viðfangsefnið.
Í yfirlýsingu frá HH segirAf framgöngu stjórnvalda í samskiptum við samtökin á undanförnum vikum að dæma er hins vegar ljóst að stjórnvöld og samtökin munu ekki, að svo komnu máli, komast að sameiginlegri niðurstöðu um nálgun við viðfangsefnið. Hagsmunasamtök heimilanna lýsa því yfir miklum vonbrigðum með að stjórnvöld skynji ekki nauðsyn þess að stíga hið pólitíska skref í átt til þeirra fjölmörgu sem afnáms verðtryggingar og leiðréttingar lána hafa krafist.
HH segjast því munu hefja vinnu við að koma Þjóðaratkvæðagreiðslunni á dagskrá.
ann 1. október 2011 afhenti formaður Hagsmunasamtaka heimilanna forsætisráðherra
undirskriftir 33.525 einstaklinga sem krefjast, í nafni almannahagsmuna, almennra og réttlátra
leiðréttinga á stökkbreyttum lánum heimilanna og afnáms verðtryggingar. Hafi stjórnvöld ekki
orðið við kröfunni fyrir 1. janúar 2012 jafngildir undirskriftin kröfu um þjóðaratkvæðagreiðslu um
kröfugerðina.
Undirskriftasöfnunin stendur til áramóta á vefsíðunni undirskrift.heimilin.is og hafa fjölmargarundirskriftir bæst við listann frá afhendingu.
Ofangreindar aðgerðir eru nauðsynlegur hluti af brýnni efnahagslegri endurreisn samfélagsins
og þurfa að gerast fyrir tilstuðlan íhlutandi frumkvæðis af hálfu stjórnvalda. Fjármálakerfið á að
vera sniðið að þörfum samfélagsins, en ekki öfugt.
VILJAYFIRLÝSING
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands, og Andrea Jóhanna
Ólafsdóttir, fyrir hönd Hagsmunasamtaka heimilanna, gera með sér svohljóðandi viljayfirlýsingu.
Í ljósi þess sem að ofan greinir lýsa aðilar sig viljuga til að starfa saman að úrlausn málsins á
eftirtöldum forsendum:
1) Skipaður verði starfshópur með fulltrúum ríkisstjórnarinnar og Hagsmunasamtökum
heimilanna sem hafi yfirumsjón með verkefninu. Hópurinn fái heimild til að setja saman
undirhópa og / eða leita til utanaðkomandi aðila til að fá þau álit, greiningar og gögn sem
nauðsynleg eru talin til að geta tekið upplýsta ákvörðun um málið. Markmið hópsins verði að
útfæra tillögur um hvernig lán verði leiðrétt með almennum hætti og verðtrygging afnumin til
samræmis við kröfuna eins og hún er orðuð á vefsíðunni undirskrift.heimilin.is. Hópurinn skili
tillögum sínum fyrir 15. nóvember 2011. Í því skyni mun hópurinn meðal annars;
a) leggja mat á svigrúm lánveitenda til afskrifta/leiðréttinga á lánum heimilanna og þær
afskriftir/leiðréttingar sem þegar hafa átt sér stað, sundurgreint eftir lánastofnunum og
tegundum lána svo vel sem kostur er og með skýrum hætti gerð skil milli gamla og nýja
bankakerfisins. Fyrirliggjandi svigrúm verði fullnýtt til leiðréttinga á lánum heimilanna.
Dugi það ekki til komi aðrir kostir til skoðunar, þar á meðal að skattleggja aukalega
hagnað þeirra frá og með haustinu 2008.
b) leggja mat á fjárhæð áfallinna og greiddra verðbóta á lánum heimilanna, og það
sem þar af er umfram 4% á ársgrundvelli, frá og með 1. janúar 2008, sundurgreint eftir
lánveitendum.
c) leggja mat á fjárhæð uppsafnaðra og útgreiddra verðbóta, og það sem þar af er
umfram 4% á ársgrundvelli á innstæður yfir 100 milljónum kr. frá og með 1. janúar 2008,
sundurgreint eftir fjármálastofnunum.
2) Á vefsíðu forsætisráðuneytisins var skýrt frá því þann 4. október 2011 að Hagfræðistofnun
hafi verið falið að leggja mat á áhrif þeirra fjögurra leiða, sem fylgdu með undirskriftunum sem
afhentar voru forsætisráðherra þann 1. október 2011. Einnig verði metið hvaða áhrif leiðirnar
hafi á þjóðarhag, en einnig á afkomu og efnahag heimila, lífeyrisþega í nútíð og framtíð, hins
opinbera, fyrirtækja og fjármálastofnana. Hagfræðistofnun verði einnig falið að leggja mat á áhrif
þess á þjóðarhag, en einnig á afkomu og efnahag heimila, lífeyrisþega í nútíð og framtíð, hins
opinbera, fyrirtækja og fjármálastofnana, að ekkert verði aðhafst frekar varðandi leiðréttingu
lána og afnám verðtryggingar. Að auki verði fenginn annar óháður aðili til að gera samskonar
sjálfstætt mat.
3) Forsætisráðherra leggi fram frumvarp til laga um afnám verðtryggingar á lánum heimilanna
og beiti sér fyrir því að frumvarpið verði samþykkt fyrir 31. desember 2011.
4) Viljayfirlýsing þessi gildir til 31. desember 2011. Gangi atriði 1 - 3 ekki eftir fyrir þann tíma
mun forsætisráðherra sjá til þess að fram fari bindandi þjóðaratkvæðagreiðsla um kröfugerðina.
Mótun spurningarinnar sem upp verður borin verði í höndum fulltrúa ríkisstjórnarinnar og
Hagsmunasamtaka heimilanna.
Reykjavík, 6. október 2011
f.h. ríkisstjórnar Íslands f.h. Hagsmunasamtaka heimilanna
____________________________ ______________________________
Jóhanna Sigurðardóttir Andrea Jóhanna Ólafsdóttir
forsætisráðherra formaður stjórnar ///Eftir þennan lestur eru fólk kannslki betir uppýst um þetta mál málanna!!! að hún Forsætisráðherran geri eitthvað sem hún virðist ekki ætla að gera því miður/Halli Gamli
Merki um sambandsleysi við hjartslátt þjóðarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.