Búið að leggja Suðurstrandarveg/þetta mjög gott mál,en hvernir er með krisjuvik

Búið að leggja Suðurstrandarveg
Innlent | mbl.is | 29.10.2011 | 14:02
Vinna við Suðurstrandarveg hefur gengið vel. Malbikunar-framkvæmdum á Suðurstrandarvegi lauk í gær og þar með er komið bundið slitlag frá Þorlákshöfn alla leið til Grindavíkur. Vegurinn er mikil bylting í samgöngum fyrir Sunnlendinga. Hann verður þó ekki formlega opnaður fyrr en eftir helgi.

Suðurstrandarvegur átti ekki að verða tilbúinn fyrr en í september 2012 og eru framkvæmdirnar því tæpu ári á undan áætlun.  Sunnlendingar fagna þessu því þeir hafa  beðið nýs Suðurstrandarvegar með eftirvæntingu um langt skeið, enda verður hann  mikil bylting í samgöngum. Að sögn Sunnlenska búast íbúar í Grindavík og á Reykjanesi við því að umferð þangað muni margfaldast við opnun vegarins.

Róbert Ragnarsson, bæjarstjórinn í Grindavík, segir að vegurinn muni breyta talsverðu fyrir Suðurland og Suðurnesin.

„Þetta mun væntanlega hafa mjög mikil áhrif á ferðaþjónustuna. Þegar fólk kemur til landsins hefur það val um að fara strax á Suðurlandið í stað þess að fara um höfuðborgarsvæðið. Eins skapar þetta möguleika á skemmtilegum dagsferðum frá t.d. höfuðborgarsvæðinu. “

Vegurinn milli Þorlákshafnar og Grindavíkur er 58 kílómetra langur. Búið er að leggja bundið slitlag sem áður segir en öllum frágangi s.s. við að setja upp stikur og annað er er þó ekki lokið og vegurinn ekki formlega verið opnaður samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.///þetta mikil framför og gott og þarft en er ekki hægt að fara sömu leið frá Kríusvik um hafnarfjörð m,maður bara spyr er mikið styttra að fara fyrir okkur R.víkinga,það er nauðsin einnig/Halli gamli


mbl.is Búið að leggja Suðurstrandarveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góður punktur hjá þér kallinn minn.

Úr Hafnarfirði / Kópavogi er ca 20km LENGRA að fara þessa leið til Þorlákshafnar - heldur en að fara venjulega leið umm Þrengslin.

Þessi "suðurstrandarvegur" hefur lítið með suðurströnd Íslands að gera. Vegurinn gagnast einungis fyrir flutninga milli Grindavíkur og Þorlákshafnar og sem leið fyrir erlenda túrista framhjá höfuðborgarsvæðinu og í Árnessýslu.

Nú verður að brúa Þjórsána nærri ósum, til þess að Rangárvallasýsla hafi af honum gagn og þar geti skapast eðlileg og tekjumyndandi ferðaþjónusta - Í Rangárþingum eru allar helstu náttúruperlurnar og sögustaðirnir.

kela (IP-tala skráð) 29.10.2011 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband