Assad varar við afskiptum/þessa hlytur að falla næstur!!!!!!

Assad varar við afskiptum
Erlent | mbl.is | 29.10.2011 | 23:04
Bashar al-Assad forseti Sýrlands. Sýrlenskir skriðdrekar gerðu skotárás í kvöld á sögulegt hverfi í borgini Homs með þeim afleiðingum að a.m.k. þrír létust, að sögn mótmælenda. Forseti Sýrlands, Bashar al-Assad, varar við því að afskipti Vesturlanda muni hafa slæmar afleiðingar í nýju viðtali við Sunday Telegraph.

Ofbeldið kemur í kjölfar eins blóðugasta dags hinna sjö mánaða löngu mótmæla, því á föstudag féllu um 40 manns í átökum tengdum mótmælunum í landinu. Alls hafa rúmlega 3.000 manns dáið í Sýrlandi síðan mótmælin gegn forseta landsins, Bashar al-Assad, brutust út í mars.

Breska blaðið Sunday Telegraph birtir viðtal við Assad í dag þar sem hann varar við því að ef Vesturvöldin hafi afskipti af Sýrlandi muni það leiða af sér „skjálfta“ og að Sýrland gæti orðið eins og Afganistan, „eða tíu sinnum verra en í Afganistan“. Hann segir að fólk verði að átta sig á því að Sýrland sé gjörólíkt Egyptalandi, Túnis og Jemen bæði hvað varðar söguna og stjórnmálin.

„Sýrland er kjarninn á þessu svæði núna, þar liggur brotalínan, og ef þú ruggar bátnum þar þá geturðu valdið stórum skjálfta,“ segir Assad í viðtalinu. „Vandamál sem koma upp í Sýrlandi munu brenna allan heimshlutann. Ef markmiðið er að kljúfa Sýrland, þá munu Mið-Austurlönd klofna.“

Ummæli Assad féllu eftir að aðalritari Sameinuðu þjóðanna kallaði enn á ný eftir því að yfirvöld í Sýrlandi hætti að berja niður mótmælin í landinu. Ban Ki-moon sagði að Assad verði að bregðast við ástandinu með raunverulegum umbótum, en ekki með „kúgun og ofbeldi“.

Assad viðurkennir í viðtalinu við Sunday Telegraph að sýrlensk stjórnvöld hafi gert mistök í upphafi mótmælanna, en nú sé aðeins verið að berjast gegn hryðjuverkamönnum. Mótmælendur segja hinsvegar að ofbeldinu sé beint gegn almennum borgurum. Utanríkisráðherrar Arababandalagsins fordæmdu í gær Sýrland fyrir „áframhaldandi morð á almennum borgurum“.////þetta endar sem annarstaðar !!!!ekki spurning að þessum einræðisherra verður komið frá!!! enda ekki a´öðru von ,þessir menn eig að gefst upp strax en ekki  fara i að berjast við sina þjóð sem vill liðræði ekki spurning um það,ekki bara hjálpa einum heldur öllum sem vilja liðræði /Halli gamli


mbl.is Assad varar við afskiptum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband