Vilja stækka verndarflokk/Eru öfgarnar eitthvað betri þarna hjá V.G. en virkjunarsinnum????

Vilja stækka verndarflokk
Innlent | mbl.is | 30.10.2011 | 21:10
Steingrímur J. Sigfússon ávarpar landsfund VG. Landsfundur VG samþykkti ályktun þar sem segir að biðflokkur og verndarflokkur rammaáætlunar verði stækkaðir frá því sem lagt er til í drögum að þingsályktunartillögu sem er nú í umsagnarferli. Í biðflokk fari allar þær virkjanahugmyndir sem nú eru í nýtingarflokki en ekki er sátt um.

Landsfundinum lauk síðdegis. Smugan hefur eftir Guðfríði Lilju Grétarsdóttur formanni umhverfisnefndar Alþingis að enginn afsláttur verði gefinn frá þessari stefnumörkun. ,,Þetta er algerlega skýr og afgerandi yfirlýsing flokksmanna um að  VG  eigi að standa vörð umhverfisstefnu sína og gefa engan afslátt,” segir Guðfríður Lilja.

„Landsfundur fagnar því sérstaklega að dýrmæt svæði eins og t.a.m. Þjórsárver, Torfajökull, Kerlingarfjöll, Gjástykki og fleiri eru nú, samkvæmt tillögu verkefnisstjórnar, flokkuð í verndarflokk. Baráttunni er hins vegar ekki lokið. Í þeim efnum ítrekar landsfundur fyrri samþykktir um að ekki verði farið í virkjanaframkvæmdir í byggð við Þjórsá og að staðinn sé vörður til framtíðar um vernd jökulánna í Skagafirði, Skjálfandafljóts, Skaftár og Hólmsár sem nú er á barmi nýtingar. Brýnt er og að endurskoða stöðu svæða sem alltof lítil umræða hefur verið um, s.s. Stóru Sandvíkur á Reykjanesskaga og virkjun Skrokköldu og Hágöngulón.

Á vettvangi rammaáætlunar skortir á að samfélagsleg áhrif hafi verið greind og rýnd með viðunandi gögnum. Landsfundur hafnar því alfarið að virkjuð verði svæði þar sem viðunandi rannsóknir á svo mikilvægum þáttum liggja ekki fyrir, s.s. áhrifum á náttúru, lífríki, vistkerfi, landslag, menningarminjar, ferðaþjónustu, útivist, mannlíf og samfélagsgerð viðkomandi svæða,“ segir í ályktun fundarins um umhverfismál.////maður bara spyr sárasaklaus: eru öfgarnar nokkuð betri á þennan vegin en hinn??það er svo að við verðum að komast að samkomulegi um hlutina, og svo ætlar þessi grúppa V.G að ráða ein hvað á að vernda og ekki vernda þetta er bara 15% þjóðarinnar,als ekki meira,svo er fullt af fólki sem eru sannir náttúruverndarsinnar,og vilja fara verlag en ekki svona aðferðir að ger hlutina ekki i samvinnu við aðra,sem vilja koma gera þetta vel og vendilega og ekkert skemma og fara samt i virkjanir sem við þurfum ,ekki spurning að þessa þarf!!!/Halli gamli


mbl.is Vilja stækka verndarflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 1045707

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband