Harpa ekki partíhúsnæði//Hvað meinar stjórin þarna,Partí eru svo vinsæl eftir ymsar uppá komur!!!

Harpa ekki partíhúsnæði
Innlent | mbl.is | 4.11.2011 | 10:40
Ráðstefnu og tónlistarhúsið Harpa við Reykjavíkurhöfn Mjög verður dregið úr veisluhaldi og þá sérstaklega árshátíðum í tónlistarhúsinu Hörpu. Að sögn Þórunnar Sigurðardóttur, stjórnarformanns rekstrarfélags Hörpu, er húsið ekki gert fyrir mikið næturlíf. Tryggja þurfi að starfsemin samræmist tilgangi hússins.

„Það er ekki þannig að það sé búið að stoppa allt veisluhald en við erum að skrúfa þetta niður. Við erum að reyna að átta okkur á hvað rúmast saman í húsinu þannig að við höfum dregið mjög úr þessum stóru árshátíðum samhliða öðrum viðburðum. Það þarf bara að stýra þessu betur. Þetta er ekki partíhúsnæði,“ segir Þórunn.

Hún segir Hörpu ekki gerða fyrir mikið næturlíf. Frekar dimmt sé í húsinu, miklar tröppur og steinfletir og mikla gæslu þurfi ef fólk sé þar fram eftir nóttu.

„Við viljum að þetta sé í góðu lagi og að öll starfsemin hér samræmist tilganginum með húsinu. Þetta er sameiginlegt mat manna. Húsið er of opið. Þó salirnir séu hljóðeinangraðir þá þarf ekkert annað en að opna hurð og þá fer hljóð á milli. Það segir sig sjálft að það er ekki ásættanlegt,“ segir hún.

Þannig hafi það til dæmis gerst að tónlist frá árshátíð hafi truflað tónleika Bjarkar í húsinu á dögunum///þetta er svolítið erfitt viðureignar þetta mál Partí er ekki sama og fyllirí ,þau eru altstaðar haldin svona mátulega veitt og svo framvegis/en listafólk á að skilja þetta ekki siður en aðrir að þetta verður að fara vel fram ein og alstaðar náttúrlega,ekki bara þarna,en þessi kona á ekki að ráða þessi ein er það,als ekki!!!/Halli gamli


mbl.is Harpa ekki partíhúsnæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband