Ekki búist við neinu af Assad/þarna á ekkert að gera til hjálpar saklausu fólki ????

Ekki búist við neinu af Assad
Erlent | AFP | 6.11.2011 | 12:18
Frá útför mótmælenda í bænum Hula, skammt frá Homs.Alain Juppe, utanríkisráðherra Frakklands, sagði í morgun að augljóst væri að Bashar al-Assad, forseti Sýrlands hefði ekki í hyggju að fara að tillögum Arababandalagsins um frið í landinu.

„Persónulega tel ég að ekki sé hægt að búast við frekari viðleitni af hálfu ríkisstjórnar Assads og að þrátt fyrir yfirlýsingar þess efnis sé ekki vilji til umbóta í landinu,“ sagði Juppe í viðtali á útvarpsstöðinni Europe 1.

„Ýmislegt hefur verið reynt til að ræða við Assad. Við sjáum hvernig það hefur farið; hann samþykkti friðaráætlun Arababandalagsins og næsta dag lætur hann taka tugi manna af lífi á götum úti,“ sagði Juppe.

Sameinuðu þjóðirnar áætla að meira en 3000 manns hafi látið lífið í mótmælunum í Sýrlandi frá því að þau hófust um miðjan mars.

„Ég harma það sem er að gerast þarna og framvinda mála hugnast ekki Sameinuðu þjóðunum,“ sagði Juppe.

Tillaga um aðgerðir SÞ gagnvart sýrlenskum stjórnvöldum var felld í síðasta mánuði af Rússum og Kínverjum í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

„Þetta voru mistök,“ segir Juppe. „Frakkar munu ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum ef það er engin heimild til þess frá Sameinuðu þjóðunum. Við erum að ræða við leiðtoga mótmælenda og erum að aðstoða þá við að skipuleggja starfsemi sína.“

Sýrlenskar öryggissveitir myrtu fjóra óbreytta borgara sem voru við mótmæli í morgun./////það er bráð nauðsynlegt að gera eitthvað þarna en láta karlinn drepa hálfa þjóðina,því ekki þarna eins og með Gaddaffi,það er ekkert betra þarna!!! og það verður að gera ,að láta Rússa og Kínverja stoppa það er ekki hægt,það er talað um að styrkja lýðræðið og við eigum að gera það ekki spurning!!!!/Halli gamli


mbl.is Ekki búist við neinu af Assad
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045716

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband