Vil endurvekja grunngildi“/höfum við ekki heyrt þetta áður,en við skulum samt skoða!!!!

„Vil endurvekja grunngildi“
Innlent | mbl.is | 6.11.2011 | 13:29
Lilja Mósesdóttir. „Það sem ég vil gera er að endurvekja grunngildi,“ segir Lilja Mósesdóttir í Silfri Egils í dag um fyrirhugaðan stjórnmálaflokk sem hún hyggst stofna. „Gildi Alþýðuflokksins um jöfnuð og réttlæti, ég vil taka upp gildi Sjálfstæðisflokksins um réttlæti.“
þannig að ef einhver verður fyrir áfalli, þá aðstoðum við. Og grunngildi Framsóknarflokksins um valddreifingu, líka hvað varðar eignarhald í atvinnulífinu.“

„Ég vil líka taka hugtak Vinstri grænna um sjálfbærni og leggja áherslu á að endurmóta efnahagslífið á grundvelli sjálfbærni,“ sagði Lilja.

„Margt af því sem var við lýði hér áður fyrr er gott og gilt og á að halda á lofti,“ sagði Lilja.

„Skoðanakannanir sýna að traust almenning á Alþingi fer þverrandi. Allir flokkar hafa sporðrennt nýfrjálshyggjunni og gefið gildi sín upp á bátinn.“

Lilja sagði að hugtök eins og vinstri og hægri í stjórnmálum væru orðin merkingarlaus. Að auki hefði hugtakið norrænt velferðarkerfi misst gildi sitt. „Skilningurinn sem við höfum heyrt á þessum hugtökum hefur breyst og hann er annar en hann var fyrir kreppu.“

Lilja þvertók fyrir að ætla að stofna flokk sem snerist eingöngu um eitt málefni, eins og til dæmis skuldamálin. „Vandi nýrra framboða er að þau hafa verið kennd við eitthvað eitt mál.“

„Það er eftirspurn eftir flokki sem stendur við stefnuna og kosningaloforði. Kjósendur hrópa eftir heiðarleika og mér finnst mikilvægt að flokkar segi fyrir kosninga með hverjum þeir hyggjast starfa.“

Hún sagðist hafa fundið fyrir stuðningi víða að úr öllum áttum. „Það takmarkast ekki við vinstrifólk, þetta er fólk úr öllum áttum, “sagði Lilja. „Það er von mín að við fáum það mikið fylgi að hrunflokkarnir verði ekki áfram stærstir á þingi.“það er ekki spurning að þetta eru falleg fyrirheit,og allt það og gaman að hún nefnir gömlu góðu gildin og svo framvegis!!!Alþýðuflokkinn" Friður frelsi og bræðralag" Sjálfstæðisflokk frelsi og hjálpsemi !! svo Framsókn Valdadeyfing og eignarhald og svo framvegis,En V.G þar er aðallin  undirbúa efnahaginn með sjálfbærni,/sem manni finnst nú bara stoppa allt!!!Jæja svo mörg voru þau orð , og við skulum sjá hvað kemur þarna út ,þetta er að mörgu leyti gott en ekki tímana tákn, að mati finnst mér það ekki/Halli gamli


mbl.is „Vil endurvekja grunngildi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband