Delta flýgur til Íslands næsta sumar!!!/þarf að vera einnig í veturnar,tengiflug til Flórida!!!

Delta flýgur til Íslands næsta sumar Innlent | mbl.is | 21.11.2011 | 12:29 Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hefur tilkynnt að það muni hefja á ný sumaráætlunarflug milli Keflavíkurflugvallar og John F. Kennedy-flugvallar í New York, en flugið hefst 2. júní 2012. Fimm áætlunarflug verða í hverri viku yfir sumarmánuðina í samstarfi við Air France-KLM en félögin eiga með sér samstarf í alþjóðlegu áætlunarflugi. Delta verður á ný eina bandaríska flugfélagið sem býður upp á beint áætlunarflug milli Íslands og Bandaríkjanna, að því er fram kemur í tilkynningu. „Á þessari leið mun Delta nota 183 sæta Boeing 757-200 þotu en í henni eru 15 Bussiness Elite-sæti, auk þess 12 sæti í Economy Comfort og 155 sæti á almennu farrými. Komutími þotnanna til New York hentar vel fyrir áframflug Delta til vinsælla áfangastaða í Bandaríkjunum, Delta býður upp á mun fleiri flugferðir frá Kennedyflugvelli en önnur flugfélög sem fljúga á þessari sömu flugleið. Flug Delta næsta sumar verður sem hér segir: Flug DL52 fer frá Keflavík kl 11:50 að morgni og lendir á Kennedyflugvelli kl. 13:50 sama dag. Flug DL51 fer frá New York kl. 23:10 að kvöldi og lendir í Keflavík kl. 8:55 að morgni næsta dags,“ segir í tilkynningu.////þetta gott að hafa sem samkeppni og það bara þarf einnig á veturnar þá færri flug bara,að er þá hægt að að fá tengiflug til Florida og um öll Bandaríkin náturulllega !!!!!Delta er gott flugfélag flaug með þvi oft hér áður!!!!/Halli Gamli
mbl.is Delta flýgur til Íslands næsta sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband