Meta ekki Vaðlaheiðargöng/ sjálfsögðu ekki ,það er mjög skiljanlegt!!!!!!

Meta ekki Vaðlaheiðargöng
Innlent | mbl.is | 21.11.2011 | 12:36

Kristján Möller er mágur Sveins Arasonar ríkisendurskoðanda Ríkisendurskoðun hefur hafnað beiðni umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um að gera arðsemismat á Vaðlaheiðargöngum. Ríkisendurskoðandi telur það ekki vera lögbundið verkefni stofnunarinnar, auk þess sem hann væri vanhæfur vegna fjölskyldutengsla við Kristján Möller alþingismann.

Arðsemi fyrirhugaðra Vaðlaheiðarganga hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu og sýnist sitt hverjum.

Fyrir tæpum tveimur vikum síðan óskaði umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis eftir því við Ríkisendurskoðun að stofnunin endurmæti forsendur Vaðlaheiðarganga ehf. fyrir því að göngin borgi sig sjálf. Sagði formaður nefndarinnar nauðsynlegt að fá hlutlægt mat á forsendunum.

Ríkisendurskoðun hefur svarað þessari beiðni með bréfi til forseta Alþingis, þar sem stofnunin biðst undan því að taka verkefnið að sér. Í svarinu segir að slíkt arðsemismat kynni að ráða úrslitum um það hvort ráðist yrði í framkvæmd við Vaðlaheiðargöng eða ekki.

Það sé hins vegar ekki lögbundið hlutverk stofnunarinnar að framkvæma slíkt mat, heldur einungis að endurskoða ríkisreikning og ársreikning ríkisaðila og að hafa eftirlit með framkvæmd fjárlaga.

Þá kemur einnig fram í svarinu að Sveinn Arason ríkisendurskoðandi tengist Kristjáni Möller, alþingismanni og stjórnarmanni Vaðlaheiðarganga ehf., fjölskylduböndum, en þeir eru mágar. Sveinn væri því vanhæfur til þess að sinna verkefninu. Þá myndu einnig vakna spurningar um áhrif vanhæfis Sveins á hæfi annarra starfsmanna stofnunarinnar í ljósi reglna um undirmannsvanhæfi.

Í svarinu kemur þó fram það mat Ríkisendurskoðunar að stjórnvöld þurfi ávallt að láta vinna ítarlega greiningu á arðsemi og áhættu kostnaðarsamra samgönguframkvæmda áður en þau ráðast í slíkar framkvæmdir. Æskilegt sé að slíkt mat sé unnið af óháðum aðila. Bendir stofnunin á Hagfræðistofnun Háskóla Íslands í því sambandi.////það er ósköp skiljanlegt að mínu mati og fleiri að þetta fari ekki fram svona!!!Þetta  er dæmi um að þetta mat er erfitt að gera svo rétt sé gert!!ekki hefur það tekist hingað til og verður sennilega aldey!!!!!Halli Gamli


mbl.is Meta ekki Vaðlaheiðargöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband