Segir ASÍ upp kjarasamningum?////Þetta vil ég sjá að ASÍ standi sig!!!!!

Segir ASÍ upp kjarasamningum? Innlent | mbl.is | 5.12.2011 | 12:02 Áform ríkisstjórnarinnar um að skerða hækkun bóta almannatrygginga og atvinnuleysistrygginga setja Alþýðusambandið í þá stöðu að til greina kemur að segja upp kjarasamningum verði áform ríkisstjórnarinnar samþykkt á Alþingi. „Skömm
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
u fyrir helgi óskaði forysta ASÍ eftir fundi með formönnum stjórnarflokkanna, formönnum þingflokka stjórnarflokkanna og formönnum og varaformönnum Fjárlaganefndar og Efnahags og viðskiptanefndar. Fundað var á föstudag. Á þessum fundum var ábyrgðarmönnum stjórnarflokkanna gerð grein fyrir þeirra stöðu sem upp gæti komið við endurskoðun kjarasamninga í janúar nk. verði áform ríkisstjórnarinnar um takmarkaða hækkun bóta almannatrygginga og sérstakar álögur á lífeyrissjóðina samþykktar á Alþingi. Eitt af meginmarkmiðum þeirra kjarasamninga sem gerðir voru milli ASÍ og SA í maí sl. var jöfnun lífeyrisréttinda. Samninganefnd ASÍ taldi sig ná samningi um þrjú mikilvæg og markviss skref í átt til meiri jafnræðis í lífeyrismálum en verið hefur. Í fyrsta lagi hækkun á mótframlögum atvinnurekenda í áföngum upp að núverandi framlagi ríkisins vegna ríkisstarfsmanna. Í öðru lagi að staðinn verði vörður um lífeyrisréttindi á almennum vinnumarkaði með því að bætur almannatrygginga (og atvinnuleysisbóta) hækki með hliðstæðum hætti og hækkun lægstu launa. Í þriðja lagi að fundin verði leið til þess að jafna áunninn lífeyrisréttindi á almennum vinnumarkaði upp á við vegna afleiðinga fjármálahrunsins. Áform ríkisstjórnarinnar um að skerða hækkun bóta almannatrygginga (og atvinnuleysistrygginga) og álögur á lífeyrissjóðina til að fjármagna umboðsmann skuldara, sérstakar vaxtabætur og almenna skattlagningu á launakostnað lífeyrissjóðanna eru klárt brot á þeim fyrirheitum sem ríkisstjórnin gaf við gerð kjarasamninga og þeim forsendum sem þeir byggja á. Verði þau að veruleika munu lífeyrissjóðir almenns launafólks þurfa að skerða lífeyrisréttindi sinna sjóðsfélaga og auka þar með enn frekar á þann mun sem á lífeyrisréttindum milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins. En hvers vegna telur ríkisstjórnin að almennt launafólk, einkum það sem verið hefur í aðildarfélögum Alþýðusambandsins og komið er á eftirlaun eða hefur misst starfsgetuna, eigi að greiða þennan reikning? Við því hafa ekki fengist nein svör. Á hinn bóginn setur þessi atlaga Alþýðusambandið óneitanlega í þá stöðu að setja upp sterkar varnir gegn þessum áformum," segir í tilkynningu frá ASÍ.////svona vill maður að ASÍ vinni allavega ættlum  við til þessa og bara verða harðir þarna er fólk sem er kjöldregið og er yfirleitt með litlar tékjur og það gaman að við erum ekki geymd!!!!svo við verum að hæla þeim sem eftir okkur muna!!! en það er einnig til fólk sem hefur nóg sem betur fer en hitt hefur margfalt yfirhöndina,við verum að geta lifað mannsæmandi!!!/Halli gamli

mbl.is Segir ASÍ upp kjarasamningum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband