Rétt að hanga á völdunum?//þarna kom þessi spurning upp hjá Ögmundi ???

Rétt að hanga á völdunum? Innlent | mbl.is | 4.1.2012 | 11:45 „Þannig hljóta stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar að spyrja sig hvort undir öllum kringumstæðum sé rétt að hanga á völdunum. Í mínum huga er svarið engan veginn einhlítt, það er háð aðstæðum í tíma og rúmi,“ skrifar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra á vefsíðu sína í dag. Ögmundur fjallar um hlutverk stjórnmálamannsins og lýsir
Ögmundur Jónasson
afstöðu sinni til valdabaráttu svo: „Sjálfur hef ég alla tíð haft sterka fyrirvara gagnvart hrárri valdapólitík og tel því mikilvægt að halda stöðugt að okkur gagnrýnum spurningum um völd og áhrif. Sem betur fer hefur stjórnmálaflokkum oft tekist bærilega að láta orð sín og athafnir ríma og vera trúir hugsjónum sínum. Mörg dæmi eru líka um pólitískar hrakfarir þegar leiðarljósið hefur verið það eitt að halda um valdatauma.“ „Forkastanleg afstaða“ stjórnlagaráðs Ögmundur lýsir yfir óánægju með afstöðu stjórnlagaráðs til kosninga um fjárhagsleg efni. „Þá voru það mér vonbrigði að í tillögum Stjórnlagaráðs er gert ráð fyrir banni við því að almenningur fái að kjósa beint um fjárhagsleg efni, nokkuð sem ég finn enga réttlætingu fyrir. Þetta byggist á því afturhaldssama viðhorfi að á vissum sviðum sé réttlætanlegt að hafa vit fyrir fólki! Þetta er forkastanleg afstaða því staðreyndin er sú, að þótt einstaklingarnir trúi og treysti á eigin dómgreind, þá hafa þeir ekki rétt til að traðka á dómgreind annarra. Þar kemur til kasta hinnar lýðræðislegu kröfu; sú krafa á ekki að lúta skömmtunarvaldi duttlungastjórnmála. Sú krafa byggist nefnilega á óvéfengjanlegum rétti.“ Blair víti til varnaðar Að mati Ögmundar gróf „nýkratismi“ undan stoðum velferðarkerfisins á Bretlandi „með því að múlbinda félagslega þenkjandi en flokkshollt fólk“, en hann gerir ennig upp valdatíð Tonys Blair og Gordons Brown á heimasíðu sinni í dag. Sem kunnugt er komst Blair til valda árið 1997 og varð þá mörgum jafnaðarmönnum að innblæstri, þar með talið á Íslandi, sem fyrirmynd um hvernig sameina mætti velferðarstefnu og frelsi í markaðsbúskap. Brown tók við honum 2007 og hélt völdunum til 2010, er Íhaldsmenn og Frjálsir demókratar komust til valda. Vilja „falbjóða“ orkuauðlindirnar Orðrétt skrifar Ögmundur, sem er menntaður stjórnmálafræðingur frá Edinborgarháskóla: „Þannig er það mitt mat að stjórnarseta breska Verkamannaflokksins, undir forystu þeirra Blairs, Browns og félaga frá 1997 og vel fram á þessa öld, hafi verið til mikillar óþurftar, veikt stoðir velferðarkerfisins breska og grafið undan félagshyggjustjórnmálum með því að múlbinda félagslega þenkjandi en flokkshollt fólk. Þetta var okkur sem fyldumst náið með framvindunni í Bretlandi víti til varnaðar, dapurleg birtingarmynd úr heimi þöggunarstjórnmála. Í stjórnandstöðu hefði Verkamannaflokkurinn hugsanlega verið gagnrýnni, alla vega grasrótin, og þannig getað haft jákvæðari áhrif á breska þjóðfélagsþróun. Um það má þó deila í ljósi þess að hægri sinnaður nýkratismi hafði náð tökum á flokknum og hefði málflutningur hans í stjórnarandstöðu, altént flokksapparatsins, að öllum líkindum verið á markaðsvísu og hægri sinnaður, svipað því sem við þekkjum hér á landi frá núverandi stjórnarandstöðu, sem helst grætur auðlegðarskatt og tregðu við að falbjóða orkuauðlindirnar fjölþjóðaauðvaldi til brúks,“ skrifar Ögmundur./////Um þetta er hægt að fjalla dag eftir dag,og niðurstana að hanga á völdum er kannski ekki það sem Ögmgumdur vill,en það vilja sumir þarna i V.G. og selja sina samvisku algjörlega,og standa als ekki við sína samvisku og ásetning!!!En þessi ríkisstjorn hangir á smá þræði annarra en stjórnar,og hvað dugar það lengi,það er svo að ekkert eiginlega kemur í veg fyrir að hún  springi//Halli gamli

mbl.is Rétt að hanga á völdunum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045679

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband