Vilji hjá Íslandi til að semja///Nú reynir á Steingrím að standa sig á móti Noðmönnum og ESB !!!

ilji hjá Íslandi til að semja Innlent | mbl.is | 13.1.2012 | 12:25 Það er vilji hjá íslenskum stjórnvöldum til að finna lausn á makríldeilunni. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon, nýr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í samtali við fishnewseu.com. Steingrímur segir að í lok þessa mánaðar verði gerð
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
loka tilraun til að ná samkomulagi í deilunni, en þá koma samningsaðilar, Ísland, Noregur, Færeyjar og Evrópusambandið, saman til fundar í Bergen í Noregi. Steingrímur segir í viðtalinu að hann telji mikilvægt að allir deiluaðilar leggi sig fram um að ná samkomulagi svo að hægt verði koma í veg fyrir ofveiði úr makrílstofninum. Steingrímur segir að það sé enginn ágreiningur um að heildarveiði á makríl eigi að byggja á tillögum vísindamanna. Ágreiningur sé hins vegar hvernig eigi að skipta veiðinni milli þjóðanna. Steingrímur segir að tillaga Noregs og ESB, sem lögð var fram á síðasta fundi á Írlandi, hafi verið algerlega óraunhæf. Tillagan hafi í reynd verið skref aftur á bak. Hann minnir á að á síðustu árum hafi makríllinn verið að færa sig til norðvesturs og veiðist því í miklu magni í íslenskri lögsögu.////Ég perónulega treysti ekki Steingrími þarna,hann er of hallur undir ESB að mínu mati og samstarfsflokknum!! En einmitt nú mun á Þetta reyna og vel það,við megum ekki gefa eftir tommu af okkar kröfu þarna bara úti  að semja!!!Nei það ber að taka þarna vel í og gera góða samninga okkar vegna,það er málið en ekkert annað//Halli gamli

mbl.is Vilji hjá Íslandi til að semja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sæll Halli minn. AGS-stjórnendurnir í földu heims-valdaklíkunni eru að koma sér fyrir í valdaembættum Noregs, og eru þegar búnir að kaupa (yfirborga/múta) leiðitamt og hlýðið fólk til þeirra valdatöku-verka. Mútu-embættisfólki í nokkrum aðalhlutverkum er stjórnað, í bakdyra-innrás, eins og er vel þekkt á Íslandi.

Ég sé mun á nokkrum misserum, hvernig spillingin er að koma sér fyrir í dóms og fjölmiðlakerfinu í Noregi eins og á Íslandi. Það er yfirstjórn AGS sem ætlar að eignast heiminn með öllu sem enn lifir í honum. Leyniklúbbar og hringborðs-klíkur vestrænnar siðspillingar stjórnar þessu öllu, og það finnst alltaf fólk sem lætur múta sér með banvænum innistæðulausum ránspeningum, gegnum tölvukerfi Vestræna banka-heimsins.

Auðvitað á Steingrímur að gera sitt besta eins og við öll í þessu landi.

Almenningur ber ekkert síður ábyrgð, með að trúa og taka þátt í mútustarfseminni, víðs vegar í embættum ræningjastofnananna, eins og t.d. lífeyrissjóðunum og bönkunum.

Ábyrgð, þáttaka og vald almennings vegur þyngst. Þar af leiðandi er almenningur, í löglegu réttlátu valdi lýðræðisins og stjórnarskrárinnar, leiðtogarnir sem geta gert eitthvað til að breyta ástandinu, en ekki einn hertekinn ráðherra hverju sinni. Þetta veit mafían, og gerir allt til að sundra almenningi.

Lífeyrissjóðs-stjórnendurnir eru t.d. alvarlegustu gerendurnir í þessu klíkuverktaka-kúgaða landi. Sú verktaka-kúgun hefur verið til hér á landi frá því Bandaríkja-her settist að hér á landi fyrir mörgum áratugum síðan. Almenningi er almennt ekki endilega kunnugt um hvernig sú spillta og rotna undirrót stjórnar hér öllu, og hefur gert í yfir hálfa öld. Afneitun almennings er hættuleg.

Þetta á að sjálfsögðu ekki við um alla verktaka, en það á alla vega við um þá sem eru svo siðblindir og spilltir að ætla að halda áfram að stjórna, múta og hóta stjórnmálamönnum og vaða í lífreyrssjóði landsmanna, eins og þeir eigi þá, eins og þeir hafa gert í mörg ár.

Sárast af öllu er að horfa uppá siðlaus rán á ykkur heiðursborgurunum, sem ekki hafið lengur heilsu til að berjast við ræningjana! Hvar er samviska og siðferðisvitund fólksins sem vinnur hjá þessum lífeyrissjóðum? Telur það sig vera ábyrgðarlaust fyrir því sem er að gerast á vinnustaðnum þeirra?

Það er haldið áfram að ráðskast og ræna eftir geðþótta siðblindra manna, og lífeyrissjóðs-eigendur eru notaðir sem réttindalausir þrælar. Rændir út úr híbýlum sínum og sveltir í ölmusubiðraðir hjálparstofnana eftir mat, til að siðblindingarnir gráðugu geti haldið hindrunarlaust áfram að leika sér með eignir og lífeyrisjóði fólksins, í ólöglegum ábyrgðarlausum áhættu-leikjum.

Vald eins manns vegur lítið, í svona stríðsástandi um ónýtt lygapeninga-kerfi lífeyrissjóða og banka, og siðblindu-sjúkra mútaðra valdagræðgi-stjórnenda.

Þetta ástand minnir helst á tindáta-leiki strákanna fyrir 40-50 árum síðan, þar sem strákarnir stjórnuðu tindátunum í orrustunum. Í dag eru tindátarnir bara lifandi embættismenn, og höfuð-stjórnendurnir eru ekki strákar í tindáta-leik, heldur strengja-brúðu-stjórnendurnir; Rokkefeller-auðmennirnir siðblindu, og vinir þeirra í leyniklúbbunum víðs vegar um heiminn (m.a. Hollandi, Frakklandi, Bretlandi og fl. Evrópu-þjóðum).

Það er ekki von að vel gangi, að semja um eitt eða neitt af viti og réttlæti.

Almenningur heimsins verður að standa saman og vinna gegn spillingunni, og hætta að þiggja mútufé og láta hóta sér til óhæfuverka, og umfram allt verður almenningur að hætta að afneita staðreyndum.

Ekki kemur réttlætið frá Rokkefeller-ættinni og álíka skemmdum eplum í Bildenburg-siðblindingja-klúbbnum og öðrum álíka klíku-klúbbum, svo mikið er víst.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.1.2012 kl. 11:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband