Frumvarp um flugvöll til framtíðar///það ber að skoða það einnig, að flugvélar munu breytast og þurfa mynni flugbrautir!!!

Frumvarp um flugvöll til framtíðar Innlent | Morgunblaðið | 21.1.2012 | 10:30 Jón Gunnarsson og ellefu aðrir stjórnarandstöðuþingmenn, hafa lagt fram frumvarp um að Reykjavíkurflugvöllur verði miðstöð innanlandsflugs. Markmiðið er að tryggja „tilvist miðstöðvar innanlandsflugs í næsta nágrenni við helstu heilbrigðis-, mennta- og stjórnsýslustofnanir landsins,“ eins og segir í frumvarpinu. Einnig að flugvöllurinn verði varaflugvöllur fyrir innanlandsflug og millilandaflug. Í greinargerð segir m.a. að brýnt sé að marka stefnu um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Jón segir marga stjórnarþingmenn því fylgjandi og telur að frumvarpið njóti stuðnings meirihluta þingmanna. Verði frumvarpið samþykkt þýðir það í raun að Alþingi hafi afskipti af skipulagsmálum í Reykjavík. Jón sagði að samkvæmt ákvæðum laga um landsskipulag gæti þingið hlutast til um skipulagsmál í sveitarfélögum í þágu almannahagsmuna. Hann sagði að sér væri ekki vel við að þurfa að stíga slíkt skref því hann teldi að skipulagsvaldið ætti að vera hjá sveitarfélögunum. „En þegar ríkir almannahagsmunir eru í húfi finnst mér mega réttlæta það og þannig er það í þessu tilviki. Ég sé ekki neina aðra leið í stöðunni til að leysa úr þeirri óvissu sem er um starfsemi Reykjavíkurflugvallar en þessa,“ sagði Jón. Valkosturinn er Keflavík Hann sat á fimmtudag málþing Háskólans í Reykjavík (HR) um framtíð Reykjavíkurflugvallar. „Þar var bara ein niðurstaða: Starfsemi Reykjavíkurflugvallar leggst af árið 2016 miðað við núverandi stefnu borgaryfirvalda,“ sagði Jón. Hann sagði það hafa komið skýrt fram að sérfræðingar væru sammála um að eini valkosturinn við Reykjavíkurflugvöll væri Keflavíkurflugvöllur. Hvorki Hólmsheiði né Löngusker væru lengur inni í myndinni sem flugvallarstæði fyrir nýjan Reykjavíkurflugvöll. Þá kom það skýrt fram hjá fulltrúum Reykjavíkurborgar að það væri engin óvissa fyrir hendi varðandi framtíð flugvallarins. Borgin hefði tekið ákvörðun hvað hann varðaði. Jón sagði stefnt að því að minnka flugvöllinn árið 2016 þannig að eftir það yrði bara ein flugbraut. „Það kom skýrt fram hjá sérfræðingum að þá yrði flugvöllurinn ekki lengur starfhæfur,“ sagði Jón. Hann sagði að með einungis einni flugbraut uppfyllti Reykjavíkurflugvöllur ekki lengur kröfur og gæti ekki þjónað hlutverki sínu sem miðstöð innanlandsflugs. Flugvöllurinn yrði því í raun lagður af árið 2016 miðað við þetta. „Ég trúi ekki að það muni gerast, en það er ekki seinna vænna að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að þessar hugmyndir nái fram að ganga,“ sagði Jón. Hann taldi að borgin hefði leynt og ljóst unnið að því að láta flugvöllinn fara og nefndi til dæmis staðsetningu Háskólans í Reykjavík, nýjan Landspítala og svo að ekki megi lækka nokkur tré í Öskjuhlíð til að auka flugöryggi. Jón sagði Reykjavíkurflugvöll fyrst og fremst vera mikilvæga tengingu landsbyggðarinnar við höfuðborgina og þá þjónustu sem þar væri til staðar. Hann sagði það vera byggðamál að hafa Reykjavíkurflugvöll áfram og lið í því að halda öllu landinu í byggð. Vill ræða innanlandsflug Ásmundur Einar Daðason alþingismaður hefur óskað eftir fundi í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis til þess að ræða stöðu og framtíð innanlandsflugs á Íslandi. Ásmundur nefnir ráðstefnuna sem haldin var á fimmtudag um framtíð innanlandsflugsins í beiðni sinni um fundinn. Hann óskar eftir því að á fundinn komi eftirtaldir gestir: Stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Isavia, formaður samgöngunefndar Reykjavíkurborgar, sviðsstjóri skipulagsmála hjá Reykjavíkurborg og fulltrúi innanríkisráðuneytisins sem hefur með flugsamgöngur að gera. Einnig fulltrúar þeirra íslensku sveitarfélaga sem áætlunarflug er flogið til.//////Það er ennþá verið að fjalla um þennan flugvöll okkar i Vatnsmýrinni,og það greinilegt að meirihluti landsmanna vill hafann þarna,ekki spurning,en það má skoða þetta að í farmtiðin minkar hann,fluginu fleygir fram og eftir 2020 geta verið komnar vélar sem þurfa stuttar brautir jafnvel engar,svo þetta framtíðarplan er ekki tímanbært að sinni!!!Við sem erum aftur a´móti þvi að byggja Landspítalan þarna höfum mikið til okkar máls og það er bara geðveiki og ekkert annað!!!!!Halli gamli

mbl.is Frumvarp um flugvöll til framtíðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú, það er hægt að leggja fram frumvörp en skipulagsvaldið er hjá viðkomandi sveitarfélagi.  Þurfa þingmenn ekki að hafa það í huga??????

Jóhann Elíasson, 21.1.2012 kl. 12:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 1045705

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband