Bjartsýni í bland við bölsýni///setjum okkar í spor skuldara og atvinnulausra,fátækra og elli og örukuliða!!!!!!!

Bjartsýni í bland við bölsýni Innlent | mbl | 3.2.2012 | 14:21 Stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar voru ekki sammála um margt við sérstaka umræðu um atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Störf voru annars vegar sögð töpuð eða unnin, fólksflótti mikill eða nær enginn og horfurnar bjartar eða dökkar. Umræðuna hóf Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks, og sagði meðal annars það 
Frá Alþingi.
sem allir voru sammála um. "Allar forsendur eru fyrir því hér á landi að búa til fyrirmyndar samfélag þar sem almenn velferð ríkir." Birkir sagði að ríkisstjórnin þurfi að nýta þau tækifæri sem gefist en það hafi ríkisstjórninni ekki tekist á þeim rúmu þremur árum sem liðin eru frá efnahagshruninu. Hann sagði fjárfestingu í sögulegu lágmarki, sjávarútveginum væri haldið í heljargreipum auk þess sem orkufyrirtækin geta ekki farið í nauðsynlegar rannsóknir vegna þess að rammaáætlun hefur ekki enn verið lögð fram. Hann sagðist kalla eftir lausnum og aðgerðum. Til svara var Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sem sagði ljóst að stefnumörkun ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum hafi sjaldan eða aldrei verið umfangsmeiri. Hún nefndi að ríkisstjórnin vilji að uppbyggingin hvíli á mörgum stoðum en ekki aðeins stóriðju og minntist á græna hagkerfið í því sambandi. Hún sagði unnið að lagningu grunns að fjölbreyttu atvinnulífi sem tryggi að unga fólki vilji búa á Íslandi til framtíðar. Þá fór hún yfir fjárfestingar og vísaði meðal annars í stefnumörkun um erlenda fjárfestingu Hún sagði horfur góðar og framkvæmdir víða í gangi og fleiri séu fyrirhugaðar á þessu ári og næsta. Þá séu á annan tug fjárfestingasamninga til skoðunar og umfang þeirra geti slagað hátt upp í 200 milljarða króna, og muni þeir skapa þúsundir starfa á næstu árum. Jóhanna sagði skýr teikn á lofti um að úr landflótta sé að draga, þeim fækkaði úr 4.800 árið 2010 í 1.400 í fyrra sem fluttu frá landinu. Þá sagði hún hagvöxt hafa verið á milli þrjú til fjögur prósent og horfur séu áfram bjartar. Margt bendi til að fyrirliggjandi spár séu í lægri kantinum og og hagvöxtur verði meiri á þessu ári en spáð var. Hún sagði að full ástæða væri til bjartsýni enda hafi væntingavísitalan hækkað mikið undanfarna tólf mánuði eða um tuttugu prósent. Hún hafi ekki verið hærri síðan á sumarmánuðum 2008. „Fólkið í landinu sér að við erum á réttri leið,“ sagði Jóhanna. Hvað rammaáætlun áhrærir þá sagði Jóhanna búast við því að hún yrði lögð fyrir þingið á næstu dögum, verið væri að leggja lokahönd á hana hjá stjórnarflokkunum. Öfugmæli forsætisráðherra Ekki voru allir sammála forsætisráðherra og sagði Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, að mikil öfugmæli hefðu komið fram hjá Jóhönnu. Hann sagði að störfum hefði fækkað um þúsundir. Og þrátt fyrir að góðir hlutir séu að gerast, s.s. í ferðaþjónustu og á fleiri sviðum, verði það ekki af fullri alvöru fyrr en fjárfestingar fáist í sjávarútveg og stóriðju. Hann sagði fjárfestingu í sjávarútvegi hafa verið um 4-5 milljarðar en þyrfti að vera í kringum 20 milljarða. Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, kom þá næstu upp í ræðustól og sagði dæmalaust að hlusta á bölsýnisræðu Jóns Gunnarssonar dag eftir dag, mánuð eftir mánuð og bráðum ár eftir ár. „Að halda því fram að störf séu að tapast þegar staðreyndirnar eru allt aðrar.“ Hann tók undir með Birki Jóni að tækifærin væru fyrir hendi og þau eigi að nýta, en ekki síst að læra af mistökum fortíðar. Næstur tók til máls Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokks, og var afskaplega reiður. Hann var reiður yfir því að ríkisstjórnin reyni að trúa þingmönnum trú um að allt sé í himnalagi hér á landi. Á meðan flýi fólk landi í stórum stíl og það sé vegna þess að ríkisstjórninni hafi ekki tekist vel upp.//////það sjá allir sem vilja það,að þessi vörn Ríkisstjórnar að allt séu framför er ekki verjandi als ekki,það að rífast um þetta er tóm tjara ,þetta blasir við að allt er á niðurleið!!!! Landsflótti atvinnuleysi framkvædaleysi skuldir heimilanna aukast daglega,það er að segja 40% íbúðareiganada að missa sitt,eina sem blífur sig eru bankararnir með belti og axlarböd fyrir öllu,og fullir af peningum sem skila lágum vöxtum  til eigenda þeirra ,það er að segja þeirra Ísensku útlendingarnir sem eiga þarna fá sitt!!!Hvað á þetta að ganga lengi,hvað hefur þessu ríkisstjórn gert til að hífa þetta upp,akurat ekki neitt,sem ekki hefur bara komið af sjaldæmum!!!Fiskurinn Áverin og ferðamennska og svo hátækni,annað hvað??þetta var allt fyrir,og svo bara sagt að kreppan sem vara heimskreppa,sé stjórnarandstöðuni að kenna!!!,það mundi sjást í kosningum og þar á þetta að ske,helst strax!!!/Halli gamli

mbl.is Bjartsýni í bland við bölsýni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband