„Þjóðin valdi okkur“/það gerir auðvitað únga fólkið,sem kaus rappið????

„Þjóðin valdi okkur“ Innlent | mbl.is | 12.2.2012 | 18:31 „Þjóðin valdi okkur, það er mjög gaman að vita af öllum þessum stuðningi almennings,“ sagði Franz Ploder Ottósson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal, eftir að fréttir bárust um að lagið þeirra, Stattu upp, hefði fengið flest atkvæði í símakosningunni í Söngvakeppni Sjónvarpsins í gær. „Þetta kemur í raun alls ekkert á óvart, við höfum fengið brjálaðan  
Blár Ópal í Hörpu í gær. Hljómsveitina skipa þeir Franz...
stuðning,þannig að ég bjóst alveg eins við þessu,“ segir Franz. - En ertu ekkert svekktur að komast ekki út í aðalkeppnina? „Jú, þetta er auðvitað svolítið svekkjandi en ekkert hægt að vera pirraður út af því. Þetta hefur verið svakalega góð og mikil reynsla fyrir okkur.“ Blár ópal fór beint úr keppninni í Hörpu í gær og spilaði á balli Páls Óskars á Selfossi. „Það var mikið stuð og mjög gaman,“ segir Franz, sáttur en þreyttur eftir átök helgarinnar. Lagið Stattu upp er eftir Ingólf Þórarinsson, Ingó veðurguð, og Axel Árnason. Hljómsveitina Bláan ópal skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Agnar Birgir Gunnarsson og Kristmundur Axel Kristmundsson. 700 fleiri atkvæði Lagið Stattu upp í flutningi strákasveitarinnar Blás ópals fékk flest atkvæði í símakosningu Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöldi. Lagið fékk 700 fleiri atkvæði en lagið sem vann, Mundu eftir mér í flutningi Gretu Salóme og Jónsa í Svörtum fötum. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Skýringin á þessu felst í því að atkvæði almennings giltu til jafns við atkvæði sjö manna dómnefndar. Lagið Stattu upp varð í þriðja sæti dómnefndarinnar en lagið Mundu eftir mér í því fyrsta. Því fór sem fór. Tæplega 80 þúsund atkvæði voru greidd í símakosningu keppninnar í gær.///////það gefur auðvitað augaleið að unga fólkið kaus Rappið, en við eldri Mundu eftir mér,sem er frábært lag og vel það,en svona er þetta við eldri erum ekki búinir að samþykkja rappið nóg als ekki,en besta lagi vann/Halli gamli

mbl.is „Þjóðin valdi okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045689

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband