Sóknargjöld lækka með samþykkt/af hverju það,það ber að spurja fólkið sjálft,þeir ekki rukkaðir sem ekki eru í trúfelögum!!!

Sóknargjöld lækka með samþykkt Innlent | mbl.is | 13.2.2012 | 16:48 Innanríkisráðherra lagði í dag fram frumvarp um breytingar á lögum um skráð trúfélög. Í greinargerð með því segir að ef það verði samþykkt þurfi að bregðast við með að lækka einingarverð sóknargjalda fyrir hvern einstakling. þetta  
Sóknargjöld hafa lækkað á undanförnum árum.
kemur fram í greinargerð með frumvarpinu. Innanríkisráðherra lagði frumvarpið fyrir á Alþingi í dag. Meginmarkmið frumvarpsins er annars vegar að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga og skráðra trúfélaga og stuðla að meiri jöfnuði meðal íbúa landsins gagnvart lögum óháð trúar- eða lífsskoðunum. Hins vegar er það markmið frumvarpsins að tryggja jafnrétti foreldra barns við ákvörðun um til hvaða trúfélags eða lífsskoðunarfélags barn skuli heyra en samkvæmt núgildandi lögum skal barn við fæðingu talið heyra til sama skráða trúfélags og móðir þess. Í umsögn fjárlagaskrifstofu segir að nálægt 15 þúsund einstaklingar sem eru 16 ára og eldri séu í trúfélögum sem ekki hafi fengið skráningu eða séu ótilgreindir. Þá séu tæplega 12 þúsund einstaklingar sem eru utan trúfélaga, en af þessum fjölda er talið að nokkur hundruð séu skráð í lífsskoðunarfélög. Heildarfjöldi félagsmanna þeirra liggur hins vegar ekki nægilega vel fyrir hjá innanríkisráðuneytinu. „Verði frumvarpið lögfest er ekki hægt að segja fyrir um hversu mikil fjölgun gæti orðið á einstaklingum sem framlag vegna sóknargjalda miðast við en benda má á að útgjöld ríkissjóðs mundu að óbreyttu aukast um 8,4 milljónir króna á ári fyrir hverja þúsund nýja einstaklinga sem ríkissjóður greiðir sóknargjöld með.“ Þá segir að vegna mikils halla á ríkisrekstrinum og stefnumörkunar um að afkoman nái jafnvægi eftir tvö ár þurfi að leitast við að sporna gegn nýjum útgjöldum af þessum toga. „Í tengslum við þetta frumvarp mætti gera ráð fyrir að því yrði náð fram með því að lækka einingaverðsviðmiðun framlaga vegna sóknargjalda þannig að heildarútgjöldin verði óbreytt þótt einstaklingum í trúfélögum og lífsskoðunarfélögum fjölgi.“//////þetta frumvarp er ekkert annað en endalok á aðskilnaði Ríkis og Kirkju,og það gott og gilt og það ger'ir ut um að það er trúfrelsi í landinu,og ver þá sem eru trúlausir að borga til kirkna og trúfelaga,en sem sagt ekki það að Ríkið geti ekki  tekið að sér að rukka fyrir þetta það er ekki stórt apparat en ekki lækka sóknargjöldin als ekki við borgum það bara eins og kirkjugarðsgjald,þetta eykur trú á að rettlætinu sé fylgt,og þeir borgi bara sem vilja vera í kirkjunni eða trúflokkum,sem þarf að reka!!!,ekki spurning/en manni lýst bara vel á þetta!!!//Halli gamli

mbl.is Sóknargjöld lækka með samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045814

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband