Fjórðungur af landsframleiðslu/einhvern vegin finnst manni þetta meira???

Fjórðungur af landsframleiðslu Viðskipti | Morgunblaðið | 18.2.2012 | 8:15 Framlag sjávarklasans til þjóðarbúskaparins nemur um 26% af vergri landsframleiðslu og allt að 20% af störfum í landinu eru tengd klasanum, samkvæmt skýrslu um þýðingu sjávarklasans í íslensku efnahagslífi sem kynnt var í 
Um það var talað á fundinum að fagið þyrfti að vera...
sjóminjasafninu í gær. Íslandsbanki styrkti gerð skýrslunnar og sagði Birna Eianrsdóttir bankastjóri frá því í ræðu sinni að hún hefði fyrst farið að huga að því að styrkja námsmöguleika í sjávarútvegsfræðum út af persónulegri upplifun. Hún hafði hitt ungan og efnilegan mann í veislu sem sagði henni að hann ætlaði að mennta sig í sjávarútvegsfræðum og hann væri því að fara til Spánar því þar væri besta námið. Það kom henni á óvart að komast að því hvað lítið námsframboð væri á Íslandi þegar um þessa grunnstoð efnahagslífsins væri að ræða og ákvað hún að leggja sitt af mörkum til að bæta það ástand. Í umfjöllun um skýrsluna í Morgunblaðinu í dag segir, að samkvæmt þjóðhagsreikningum hafi beint framlag fiskveiða og fiskvinnslu til vergrar landsframleiðslu aðeins numið 7-10% á undanförnum árum, en samkvæmt þessari nýju skýrslu sé áætlað að heildarframlag sjávarklasans til landsframleiðslu árið 2010 hafi verið 26%, eða um 400 milljarðar króna. Þetta hlutfall er samsett úr fjórum þáttum; beinu framlagi (10,2%), óbeinu framlagi (7,3%), eftirspurnaráhrifum (7,0%) og að lokum er meðtalin önnur útflutningsstarfsemi klasans (1,5%).////það sem mann slær þarna þarna er að manni finnst þetta ekki alveg standast,kannski hludrægur svolitið!! en þessar tölur eru ekki alveg trúverðugar,þegar á allt er litið!!!Álið,er næst svo aðvitað ferðamenska og tækinikunátta,svo eitthvað landbúnaður,en uppá siðkstið vinnuafl fluttút það er meinið,en við getum aukið kvótan og fikað meira allavega um sinn,til að hafa okkur í framkvæmdir sem við verum að lifa á í farmtíðinni/Halli gamli

mbl.is Fjórðungur af landsframleiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband