Rannsókn nauðgunarmáls lokið/Vonandi að þessu verði góð skyl,því engin er sekur fyrr en sekt er sönnuð!!!

Rannsókn nauðgunarmáls lokið Innlent | mbl.is | 23.2.2012 | 15:31 Rannsókn lögreglu 
Egill Einarsson
höfuðborgarsvæðisins á nauðgunarkærum á hendur Agli Einarssyni er lokið. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, staðfesti þetta við fréttavef Morgunblaðsins. Málið er því að nýju komið ákærusviðs lögreglunnar. Ákærusvið lögreglunnar sendir málið svo áfram til ríkissaksóknara sem tekur endanlega ákvörðun hvort gefa eigi út ákærur á hendur Agli og unnustu hans
 
Tvær nauðgunarkærur hafa borist á hendur Agli sem neitar sök, meðal annars í yfirlýsingu
 
„Nauðgunarkæra á ekki við rök að styðjast“ Egill Einarsson. mbl.is/Ernir Egill Einarsson segir að önnur kæra á hendur sér vegna nauðgunar, sem hann er sakaður um að hafa framið árið 2004, sé enn óskiljanlegri en fyrri kæran. Þá segir hann, í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér, að „þessi opinbera aðför gegn mér er óskiljanleg.“ Þá segir Egill að rannsókn á fyrra málinu sé nú lokið og að búið sé að kynna honum rannsóknargögn málsins. „Þau staðfesta svo ekki verður um villst að kæra um nauðgun á ekki við rök að styðjast og mun ég því óska eftir með formlegum hætti að rannsakað verði hvort um vísvitandi rangar sakargiftir á hendur mér geti verið að ræða,“ segir Egill. Yfirlýsingin er svohljóðandi: „Í byrjun desember á síðasta ári barst lögreglu kæra á hendur mér og unnustu minni um nauðgun þann 24. nóvember. Ég lýsti því strax yfir að kæran væri fráleit og ætti ekki við nokkur rök að styðjast. Ég vildi að öðru leyti leyfa lögreglu að sinna rannsókninni í friði eins og eðlilegt er þegar kærur berast til hennar. Nú er hins vegar þeirri rannsókn lokið og mér hafa verið kynnt rannsóknargögn málsins. Þau staðfesta svo ekki verður um villst að kæra um nauðgun á ekki við rök að styðjast og mun ég því óska eftir með formlegum hætti að rannsakað verði hvort um vísvitandi rangar sakargiftir á hendur mér geti verið að ræða. Strax eftir að umrædd kæra hafði verið lögð fram birtist umfjöllun í hana í fjölmiðlum. Þær upplýsingar sem þar komu fram eru hvorki frá mér komnar né lögreglu. Virðist því einhverjum mjög í mun að sverta mannorð mitt og reiðin og hefndarhugurinn hjá þeim sem lengi hefur verið í nöp við mig hefur fengið útrás í þeirri umfjöllun. Í þessari viku barst lögreglu síðan önnur kæra á hendur mér um nauðgun. Komu fréttir af henni á sama tíma í fjölmiðlum. Hverjir nákvæmlega leka slíkum upplýsingum til fjölmiðla er mér ekki kunnugt en ætla má að óvildarmenn mínir standi þar að baki. Umrædd kæra byggir á atviki sem á að hafa gerst fyrir átta árum, eða árið 2004. Eftir að hafa verið kynnt kæran af lögreglu er ég engu nær um hver þessi kona er eða hvert brot mitt er, enda átti sú atvikalýsing sem mér var kynnt ekkert skylt við nauðgun. Er hún því enn óskiljanlegri en fyrri kæran. Þegar gögn og kærur í þessum málum eru skoðaðar verður ekki önnur ályktun dregin en að aðrir en kærendur sjálfir standi á bak við kærurnar og aðförina á hendur mér. Ég hef lengi sætt gagnrýni óvildarmanna minna og get kannski að einhverju leyti sjálfum mér um kennt. En þessi opinbera aðför gegn mér er óskiljanleg og mér finnst reyndar furðulegt að slíkt geti gerst í okkar litla landi. Ég ber eflaust einhverja ábyrgð á því hversu herskáir óvildarmenn mínir hafa verið í yfirlýsingum sínum á opinberum vettvangi í tengslum við rannsókn þessara mála. En aðför að því tagi sem ég og unnusta mín höfum mátt þola er ekki eðlileg. Því var mér nauðugur sá kostur að gefa yfirlýsingu þessa.“///////Það er svo að við verum að virða það að engin er sekur fyrr en sekt er sönnuð!!! á þvi er þessi ransókn byggð og svo einnig er það svo að þessi áburður er gerður að mann sem hefur verið að predika siðfreði og borsiði og semsagt að ver hálf opinber peróna,svo málið er að það má um það fjalla en als ekki sem saknæmt fyrr en sannað hefur verið,en umfjöllum um svona mál eru oft á einn veg og hann þá að menn séu sekir við skulum ekki brenna okkur á þvi núna/Halli gamli

mbl.is Rannsókn nauðgunarmála lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hitt er nú svo,   myndi lögreglan og saksóknari eyða sínum dýrmæta tíma í mál sem eru á engum sönnum eða rökum reyst?

E.t.v tíðkast það þó hér á landi, bara svona til að prófa.

Jonsi (IP-tala skráð) 23.2.2012 kl. 19:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 1045653

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband