Fagnar ákvörðun Ólafs// það er góð ákvörðun og skynsöm!!!!!!!!

Fagnar ákvörðun Ólafs
Innlent | mbl | 4.3.2012 | 17:03

Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, á... „Ég fagna þessari niðurstöðu. Hann verður við þessari áskorun og ég fagna því bara. Þetta er mikið atriði við núverandi aðstæður þar sem hann er bæði öruggur og djarfur og þorir að grípa í taumana og virkja þjóðarviljann.“
segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, í samtali við mbl.is en hann var einn þeirra sem stóð að undirskriftasöfnun þar sem skorað var á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér í embætti.

„Hann hefur sýnt mikið öryggi og festu og þorað, talað máli Íslendinga erlendis. Þannig að hann hefur verið sterkur rökræðumaður fyrir þjóðina og bent á framtíðarsýnir sem skipta máli og möguleika,“ segir Guðni.

„Ég gerði mér vonir um þessa niðurstöðu en ég var ekki klár á því þar sem hann hefur aldrei rætt þetta við mig persónulega,“ segir Guðni aðspurður hvort hann hafi búist við því að Ólafur myndi ákveða að bjóða sig fram aftur líkt og hann tilkynnti um fyrr í dag.

Spurður út í þau ummæli Ólafs í yfirlýsingu sinni að hann kunni að hætta áður en kjörtímabilinu ljúki og hverfa til annarra verkefna þegar meiri stöðugleiki skapist í þjóðfélaginu segir Guðni það vera heiðarlega yfirlýsingu.

„Hann er búinn að vera lengi í embættinu. Hann er orðinn þetta fullorðinn, á þeim aldri þegar menn fara að hætta störfum þannig að mér finnst þetta bara heiðarleg yfirlýsing af hans hálfu. Það kemur þá ekkert á óvart ef það gerist. Mér finnst þetta bara styrkja stöðu hans,“ segir Guðni./////Við eum sko sammála þarna við Guðni Ágústsson ekki spurning og ábygglega meirihluti landmanna ekki spurnin,þetta mun verða sögulegt og gott fyrir okkur flest//Halli gamli


mbl.is Fagnar ákvörðun Ólafs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já Haraldur ég er líka mjög glöð yfir þessari ákvörðun Forsetans og fagna henni einfaldlega vegna þess að það eru svo miklir óvissutímar í loftinu á sama tíma og við erum með Ríkisstjórn sem virðist gera allt þveröfugt við það sem að Þjóðin vill og þegar svoleiðis tímar eru í loftinu þá vantar öryggisventil ef við getum sagt svo fyrir vilja Þjóðarinnar og þar kemur Hr.Ólafur Ragnar sterkur inn...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 4.3.2012 kl. 17:51

2 identicon

Já það er gott að Hr. Ólafur Ragnar Grímsson tók þessa ákvörðun, en allra verst er að þessi maður (Ástþór!) skuli vera enn einu sinni með þetta framboð sitt, hann ætti að vera farinn að vita það að það vill engin sjá hann sem forseta, þetta kostar þjóðin líka ekkert smáræði að þurfa að halda forsetakosningar þegar að vitað er með vissu hver það er sem verður kjörinn Forseti Íslands, og ætti ástþór nú að vera maður að meiru og draga framboð sitt til baka, þó að það sé réttur okkar Íslendinga að fá að kjósa okkur Forseta á fjagra ára fresti, þá vita menn ósköp vel að bjóða sig fram gegn sitjandi forseta þýðir ekkert, alla vega ekki í þessu tilfelli!!!

Pálmar Smári Gunnarsson (IP-tala skráð) 4.3.2012 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband