Kjósendur geti farið fram á þingrof/það er í lögunum !!!!!

Kjósendur geti farið fram á þingrof Innlent | mbl.is | 29.3.2012 | 15:50 Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi í dag að hann teldi mun betra að ákveðinn fjöldi kjósenda gæti farið fram á þingrof en að geta krafist þess að ákveðin mál færu í þjóðaratkvæði. Önnur umræða fer fram í dag um þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæði í sumar samhliða forsetakosningum um tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Pétur sagðist þó hlynntur því að ákveðinn fjöldi kjósenda gæti 
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
krafist þjóðaratkvæðis um mál, þó það mætti ekki vera þrisvar í viku, en taldi mun sterkara og lýðræðislegra að hægt yrði að krefjast þingrofs. Hann sagði að eðlilega þyrfti þó að vera eðlilegar kröfur um fjölda kjósenda til þess að hægt væri að fara fram á þingrof. Þá sagðist Pétur hlynntur breytingartillögu Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, að einnig yrði kosið samhliða forsetakosningum um það hvort halda ætti áfram umsókn um inngöngu í Evrópusambandið. Í ræðu sinn fór Pétur yfir þingsályktunartillöguna og breytingatillögur við hana og lýsti skoðun sinni á því efni. Í lok ræðunnar sagði Pétur að nú væri tími hans á þrotum og hann yrði þá að óska eftir orðinu aftur síðar í umræðunni þar sem hann ætti enn eftir að fara yfir mikið efni.
 
Umræður eru hafnar á Alþingi um tillögu meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs. Samþykkt var á þingfundi að fundur mætti standa fram eftir kvöldi. Tillaga stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er umdeild. Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn leggjast gegn tillögunni, en stjórnarflokkarnir og Hreyfingin styðja tillöguna. Tillöguna þarf að afgreiða fyrir lok mánaðarins ef hægt á að vera að láta þjóðaratkvæðagreiðsluna fara fram samhliða forsetakosningum. Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, gerði grein fyrir tillögunni. Hún tók fram að nefndin ætti eftir að fá tillöguna aftur til umræðu og hún útilokaði ekki að breytingar yrðu gerðar á orðalagi tillögunnar. Hún hvatti minnihluta þingnefndarinnar til að taka þátt í umræðu um það. Valgerður hafnaði þeim rökum andstæðinga tillögunnar að nefndin vissi ekkert hvað hún væri að fara með þessari tillögu. Hún vissi nákvæmlega hvert hún væri að fara.////////////////////////Ein og við sjáum öll eru þetta mikil átök ,og ekki undra það undir eru aðalvinnuvegur þjórinnar,og svo Stórnaskrá Íslands,svo geta mann bara gert sér grein fyrir þvi hversu mikil ástæða er þarna til að flaustra ekki með hlutina,þetta er komið svio að það ber að stoppa þetta og safna undirskriftum til Forseta um stjórnarof og .að strax ekki annað virðist í stöðununni,þetta hefur ekkert með póltík að gera þetta er varðar þjóðarhag að stoppa þetta aðaur en þessi valdaníðsla verður framkvæmd///Halli gamli

mbl.is Kjósendur geti farið fram á þingrof
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045682

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband