Frétt af mbl.is Jarðarstund í Reykjavík///Yfir hverju á að gleðjast???????

Jarðarstund í Reykjavík Innlent | mbl.is | 31.3.2012 | 12:34 Reykjavíkurborg tekur þátt í alþjóðlegum viðburði í ljósaskiptunum laugardaginn 31. mars. Borgir í 140 öðrum löndum taka jafnframt þátt. Viðburðurinn nefnist Earth Hour eða Jarðarstund og felst í því að kveikja ekki rafmagnsljós milli 20:30 til 
Styttan af Ingólfi Arnarsyni á Arnarhóli.
21:30. Reykjavíkurborg tekur þátt í Grænum apríl og stendur fyrir nokkrum viðburðum af því tilefni. Jarðarstundin gefur tóninn fyrir það sem koma skal í mánuðinum. Jarðarstundin var haldin í fyrsta skipti í Ástralíu fyrir nokkrum árum og teygir nú anga sína út um víða veröld. Stundin er skipulögð af sjálfboðaliðum og er markmiðið að hvetja hvern og einn til að velta fyrir sér hvað hann geti lagt af mörkum í þágu umhverfisins. Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa, fyrirtæki og stofnanir til að kveikja ekki rafmagnsljósin þessa stund. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að milli 20:30 og 21:30 dimmi hratt og borgarbúar séu hvattir til þess að kveikja fremur á kertum en rafmagnsljósum. „Borgin vinnur að því að öll helstu ljós verði slökkt í miðborginni og hægt verði að njóta myrkurs frá Arnarhóli. Stemmningin verður þó ekki aðeins þar heldur á hverju því heimili þar sem ljósin eru ekki kveikt. Vonir standa til þess að sem flestir taki þátt í þessu framtaki, slökkt verði á byggingum og götuljósum þar sem því er við komið.“ Grænn apríl er verkefni sem hópur áhugafólks um umhverfismál hrinti í framkvæmd í fyrsta sinn árið 2011. Markmiðið er að fá ríkisstjórnina, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að kynna vöru, þekkingu og þjónustu sem er græn og umhverfisvæn og styður við sjálfbæra framtíð á Íslandi./////////Eg get ekki séð höfum  svo mikiöð til að gleðjast við þetta fólk í R.vík og annarstaðr ,það er ekkert gert hvorki i Borg að annsrstaðar til að gleðja fólk það er á þvi hækkaðir skattar .atvinnuleysi og stöðnun á alla vegu,og þessir kommar sem stjórna bæði í Borg og landsvísu er ekki gæfulegt,við getum ekki glaðst merð þvi alla ekki!!//Halli gamli

mbl.is Jarðarstund í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045649

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband