AGS telur að hækka eigi stýrivexti/Gamla planið þeirra er öfugmæli!!!

AGS telur að hækka eigi stýrivexti Viðskipti | mbl.is | 12.4.2012 | 15:54 Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir 2,4% hagvexti á Íslandi í ár en það er heldur minni hagvöxtur en spá Hagstofu Íslands hljóðar upp á, 
Julie Kozack, yfirmaður sendinefndar AGS á Íslandi
2,6%Hagvaxtarspá AGS nær til ársins 2017. Telur AGS að hækka eigi stýrivexti á Íslandi. Í síðustu viku fór fram reglubundin umræða um stöðu og horfur í íslensku efnahagslífi í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Jafnframt fór fram umræða um eftirfylgniskýrslu sjóðsins í kjölfar þess að efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lauk í ágúst 2011. Sjóðurinn birti í dag fréttatilkynningu á heimasíðu sinni þar sem greint er frá þessu. Þar kemur meðal annars fram að spáð sé 2,6% hagvexti árið 2013, 2,2% árið 2014, 2,6% árið 2015, 2,7% árið 2016 og 2,9% árið 2017. Hratt mun draga úr atvinnuleysi á Íslandi ef marka má spá AGS. Spáir sjóðurinn því að atvinnuleysi mælist 6,3% í ár, 6% árið 2013, 5% árið 2014, 4,4% árið 2015 og 4% á árunum 2016 og 2017. Segir í skýrslu AGS að innlend eftirspurn skýri vöxt að mestu á Íslandi í dag og atvinnuleysi fari minnkandi. Á sama tíma sé verðbólga enn mikil. Horfur séu á frekari bata í efnahagslífinu en áfram sé hætta fyrir hendi, bæði innanlands sem utan frá. Vegna viðvarandi verðbólguþrýstings og að verðbólgan sé áfram meiri en verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands hljóða upp á þurfi að hækka stýrivexti Seðlabankans. Eins verði að herða peningamálstefnuna á Íslandi. Of mikil hætta fylgi því ef gjaldeyrishöftunum verði aflétt Varlega verði að stíga í þá átt. Fram kemur í skýrslu AGS að umtalsverður árangur hafi náðst í að endurskipuleggja skuldir heimila og fyrirtækja. Hins vegar séu skuldir heimilanna en mjög miklar. Fjármál hins opinbera stefna í rétta átt en batinn er hægari heldur en áður var talið, að því er fram kemur í skýrslu AGS.
////// þetta er alvarlegt mjög að AGS skuli ekkert hafa lært,á öllum sínum reddingum!!! að þetta sé Það sem við eigum að gera,ef eru til öfugmæli eru þau þarna sett fram ,ekki heill brú í neinu þarna,allt öfugt og snuið,það er ekki von á góðu ef við förum eftir þessu//Halli gamli

mbl.is AGS telur að hækka eigi stýrivexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband