Staða sjávarútvegs og landbúnaðar veikt///þetta er feygðarflan ekki spurning!!!

 Innlent | mbl.is | 17.4.2012 | 19:54 Jón Bjarnason þingmaður VG lýsti í kvöld yfir andstöðu sinni við þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórnarráði ÍslandsJón Bjarnason á Alþingi.. Þar með hafa tveir fyrrum ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafnað tillögunni, því Árni Páll Árnason gagnrýndi hana einnig harðlega í dag. Sviðin jörð frjálshyggjunnar Jón beindi sjónum einkum að því að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti yrðu lögð niður og sameinuð atvinnumálaráðuneyti. Hann benti á að þegar breytingar voru síðast gerðar á ráðuneytum, árið 2010, hefðu sambærileg áform verið felld út úr upphaflegum tillögum. â€Å¾Þannig að það má segja að vilji Alþingis hafi komið fram hvað það varðar á þeim tíma," sagði Jón. Hann rifjaði einnig upp ályktun flokkráðsfunds VG á Akureyri árið 2010 þar sem fundurinn skoraði á þingflokk VG að endurskoða endurskipulagningu stjórnarráðsins, með þeim orðum að sjávarútvegur og landbúnaður myndu, sem grunnatvinnuvegir þjóðarinnar, skipta verulegu máli við endurmótun íslensk atvinnulífs eftir â€Å¾sviðna jörð frjálshyggjunnar og græðgisvæðingu síðustu ára". Samningsstaðan gagnvart ESB veikt â€Å¾Eitt af því sem þarna var haft sem rökstuðningur var að þá hafði Alþingi sent umsókn um inngöngu að ESB og það lá alveg fyrir að þær atvinnugreinar sem myndi mæða harðast á í því umsóknarferli yrðu einmitt sjávarútvegur og landbúnaður," sagði Jón. â€Å¾Það er nú svo að þær kröfur sem ESB gerir í aðlögunarferli sínu eru einmitt breytingar á sjávarútvegi og landbúnaði og það er líka staðreynd að flestar greinar sjávarútvegs og landbúnaðar hafa lýst sig mjög andvígar þessu aðildarferli." Þess vegna sagðist jón telja það bæði varhugavert og óviturlegt að veikja stjórnsýslulega stöðu sjávarútvegs og landbúnaðar með því að leggja niður ráðuneyti þeirra. Það yrði til þess fallið að veikja samningsstöðu Íslands gagnvart ESB. â€Å¾Staðan gæti svo sem orðið önnur ef þeirri vegferð verður hætt og umsóknin afturkölluð," bætti Jón við.

/////Þetta er svona !!og það er ótrúlegt að horfa á formenn flokkana í þessari Ríkissstjórn fara með þetta fleipur það er ekki mönnum bjóðandi/Halli gamli


mbl.is Staða sjávarútvegs og landbúnaðar veikt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Óli Helgason

Hvað með þá staðreynd að áhrif Bændahallarinnar og LÍÚ á stjórnarráðið, og almenna stjórnsýslu, minnka við stofnun á einu Atvinnuvegaráðuneyti... Þar sem hægt verður að nota það starfsfólk sem var í öðrum ráðuneytum í þau störf sem t.d Bændahöllin var með á sinni könnu... Og einokaði...?

Sævar Óli Helgason, 17.4.2012 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband