Virkjanir kalla á verulegar samgöngubætur/Auðvitað ber að vikja þarna skinsamelga!!!

Virkjanir kalla á verulegar samgöngubætur Innlent | mbl.is | 25.4.2012 | 13:18 Framkvæmdanefnd Þjórsárveita segir að fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir og framtíðarnýting virkjana í neðri Þjórsá kalla á verulegar samgöngubætur á svæðinu. Telur nefndin að fyrirhugaðar virkjanir í Þjórsá geti skapað ný og spennandi atvinnutækifæri. Þetta kemur fram í ályktun frá framkvæmdanefnd Þjórsárveita vegna rammaáætlunar. nefnir framkvæmdanefndin fyrirhugaða brú ofan við Búðafoss en hún muni tengja uppsveitir Árnessýslu og Rangárvallasýslu vel saman. „Við bættar samgöngur skapast betri skilyrði til atvinnuuppbyggingar og samnýtingar þjónustu sveitarfélaga á svæðinu. Gott samgöngukerfi er lykilþáttur í vexti hverrar byggðar og skapar að auki tækifæri til aukinnar samvinnu sveitarfélaganna við Þjórsá. Samgöngubætur í tengslum við fyrirhugaðar virkjanir í neðri-Þjórsá geta skapað ný og spennandi atvinnutækifæri, t.a.m. í ferðaþjónustu á Suðurlandi. Stjórn Landsvirkjunar telur mikilsvert að fyrirtækið fái sem hæst verð fyrir raforkuna, dreifi áhættu og auki fjölbreytni viðskiptavina sinna. Lýst hefur verið yfir að ekki sé í forgangi að útvega orku til nýrra álvera á suðvesturhorni landsins. Með þeirri yfirlýsingu var gefinn tónn um að nóg væri komið af slíkum iðnaði og tími kominn á meiri fjölbreytni á nýtingu orkunnar sem skapast á Suðurlandi. Mikill stuðningur er hjá Þjórsársveitum við útgefna stefnu Landsvirkjunar um að deila orkunni á fjölbreyttari, smærri og grænni iðnað sem ekki er endilega háður hafnsækni. Slíkur iðnaður hentar einkar vel á Suðurlandi og í tengslum við hann geta skapast ótal spennandi atvinnutækifæri á svæðinu. Þjórsársveitir telja að það rími vel við útgefna stefnu ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmála hennar en þar kemur fram að ríkisstjórnin vilji „efla græna atvinnustarfsemi, þar með talin verkefni þar sem hrein endurnýjanleg orka er nýtt á sjálfbæran hátt til verðmæta- og atvinnusköpunar.“ Þjórsársveitir hvetja ríkisstjórnina til að vinna með sveitarfélögunum á svæðinu og Landsvirkjun til eflingar fjölbreytts og græns iðnaðar á Suðurlandi.“ ///////Auðvitað finnst manni, sem hefur umkverfisvernd einnig í huga, að virkja þarna,ekki spurning það er nauðsinnlegt og þarf ekki að skemma mikið það er hægt að hafa þetta í stíl við umkverfið og fallegar byggingar,tek dæmi virkjarnir í Soginu þær eru 3 fara bara vel þarna,það er svo að blessaðir bændurnir eru oft ekki til fyrirmyndar með slíkt!!!svo þetta með laxinn i þessari kolmorauður á þarna er bara grín að vera að rannsaka það meira,en bæta bændum það sem þeim ber,við verum að virkja þarna það er besta leyðin,og okkur mun vanta rafmagn ekki spurning,svo er verið að tala um að vatnið muni fara minnkandi með bráðnum Jökkla og þá er ekki eftir neinu að bíða meða að virkja meðan hægt er!!!Þessir umhverfissinnar eru ágætir en mega ekki ver of öfgafullir,sem þeim hættir til!!!!Halli gamli

mbl.is Virkjanir kalla á verulegar samgöngubætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045682

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband