Klækjabrögð eða morgunfýla?//Þessi ríkisstjórn vill ekkert nema ófrið!!!!

Klækjabrögð eða morgunfýla? Innlent | mbl.is | 26.4.2012 | 11:11 Tekist var á um afgreiðslu utanríkismálanefndar á samþykkt rammasamnings milli ríkisstjórnarinnar og framkvæmdastjórnar ESB um IPA-styrki við upphaf þingfundar í dag. Stjórnarandstaðan sagði að um klækjabrögð væri að ræða en fulltrúi mFrá Alþingi.
eirihlutans í nefndinni bað sömu þingmenn að láta af morgunfýlu. Málið var afgreitt út úr utanríkismálanefnd í morgun og tók Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og fulltrúi í nefndinni, málið fyrstur upp við upphaf þingfundar. Hann sagði að hvað eftir annað væri grundvallaratriðum í umsóknarferlinu að Evrópusambandinu haldið frá eða út úr þeim snúið. Nú hafi málið þróast á enn verri veg þar sem stjórnarmeirihlutinn beiti brögðum til að þoka málum áfram. Evrópusambandið AP Sigmundur sagði að IPA-styrkir hefðu ekki verið ræddir sem skyldi og sagði stjórnarliða þagga niður umræðuna um umsóknina að ESB. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks og fulltrúi í utanríkismálanefnd, sagði það hafa vakið furðu sína þegar hún mætti á fundinn í morgun, að vísu þrettán mínútum of seint. „Þá var verið að greiða atkvæði um hvort taka ætti málið út.“ Hún sagði nefndina ekki hafa verið fullskipaða en alsiða væri að bíða eftir nefndarmönnum sem ekki hafa boðað forföll. Þá hafi á sama tíma meirihlutinn kallað inn tvo varamenn. Ragnheiður sagðist ekki skilja hvers vegnar svo lá á að taka málið út. Hún svaraði því sjálf, að málið hafi legið inni í nefndinni lengi en formaður hennar vitað að ekki væri meirihluti fyrir málinu þegar utanríkismálanefnd er fullskipuð. Því hafi verið gripið til klækjabragða, varamenn kallaðir til og málið þannig afgreitt. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar og fulltrúi í nefndinni, sagði fagnaðarefni að málið hafi verið afgreitt út úr nefndinni, enda greiði það fyrir atvinnuskapandi þekkingarverkefnum og gjaldeyrisöflun. Hann bað þingmenn að vera ekki svona morgunfúla og sagði að svo virðist sem ekki megi gera neinar ráðstafanir ef það tengist á einhvern hátt Evrópu. „Vilja þeir kannski hætta viðskiptum við Evrópu, loka landamærum eða segja upp samningum við ríki ESB.“ Helgi sagði að málið hafi verið afgreitt með fullkomlega eðlilegum hætti. Málið hafi verið á dagskrá kl. 8.30 ekki boðað að gestir myndu mæta. Því hafi nefndarmönnum mátt vera ljóst að til stæði að afgreiða málið úr nefndinni á þessum tíma. Ekki hafi verið eftir neinu að bíða og öllum nefndarmönnum mátti vera ljóst að tímanlega ætti að mæta til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kom einnig í ræðustól og vildi setja málið í samhengi. Hann nefndi hversu naumt það er hjá meirihlutanum að koma málum sem tengjast ESB í gegn, og hefði verið örlítil breyting á nefndinni í morgun hefði það ekki tekist. Hann velti því fyrir sér hvernig málin standa þá þegar IPA-styrkirnir koma aftur inn í þingið. „Það kann að vera, að nefndarmenn kunna að reka sig á það, að sigurinn er ekki unninn, þó að þeir hafi unnið þennan áfanga í morgun.“//////Er það fullkomið réttlæti að vinna svona,er það Alþingi til sóma,nei það er það ekki!!!Þessi ríkisstjórn gerir bara í þvi að setja allt i uppnám,enda að verja vondan vana sinn að þeir einir ráði,til hvers er þá minnihlutinn??? ég við bara segja það að ef ég væri þarna i minnihlutanum mundi ég labba út með öllum sem hann telja og ekki koma á fundi fyrr en málin sem þjoðin bíður eftir eru komin á dagskrá ,þarna kemur fram að Þingforseti er hlutdrægur mjög og tekur ekkert tilit til minnihlutans,og þar með eru þingsköp brotin ,svo þetta er það eina sem gyldir gerið þetta bara/Halli gamli

mbl.is Klækjabrögð eða morgunfýla?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband