Þóra mælist með mest fylgi//Þetta á eftir að breytast ekki spurning!!!

Þóra mælist með mest fylgi Innlent | mbl.is | 26.4.2012 | 16:38 Samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar HÍ á fylgi forsetaframbjóðendanna fengi Þóra Arnórsdóttir mest fylgi, 49%. 
Þóra Arnórsdóttir býður sig fram til embættis forseta Íslands
Ólafur Ragnar Grímsson mælist með 34,8% og Ari Trausti Guðmundsson 11,5%. Aðrir frambjóðendur mælast með minna fylgi. Könnunin var send á netpanel Félagsvísindastofnunar, sem byggir á tilviljunarúrtökum úr Þjóðskrá. Gögnin voru að auki vigtuð með tilliti til aldurs, kyns og búsetu svo þau endurspegli þjóðina, samkvæmt fréttatilkynningu frá Félagsvísindastofnun. Sami hópur var spurður um afstöðu sína til frambjóðenda þann 17. apríl síðastliðinn en þá hafði Ari Trausti Guðmundsson ekki gefið kost á sér. Hann virðist sækja fylgi sitt einkum til óákveðinna en 46% þeirra sem nú segjast ætla að kjósa hann ætluðu áður að skila auðu, voru óákveðnir eða vildu ekki svara. 0,8% sögðust ætla að kjósa Ástþór Magnússon, 0,3% ætla að kjósa Hannes Bjarnason, 3% hyggjast kjósa Herdísi Þorgeirsdóttur og 0,6% Jón Lárusson. Þriðjungur stuðningsmanna Ara Trausta ætluðu að kjósa Þóru Arnórsdóttur þegar spurt var 17. apríl og 11% ætluðu að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson. Svarendur voru spurðir að því hvað vegi þyngst við val þeirra. Velja mátti að hámarki þrjú atriði af 15. Almennt þótti svarendum þekking og reynsla frambjóðandans mikilvægust og því næst heiðarleiki frambjóðandans. Þannig segist 61% þeirra sem styðja Ólaf Ragnar Grímsson að þekking hans og reynsla sé einn af þremur þáttum sem vegi þyngst í ákvörðun þeirra. Það sama gildir um 24% stuðningsfólks Þóru Arnórsdóttur og 37% þeirra sem styðja Ara Trausta Guðmundsson. Tæpur helmingur stuðningsfólks Ara Trausta segir heiðarleika hans vega einna þyngst í ákvörðuninni en það á við um 45% stuðningsfólks Þóru en 18% þeirra sem styðja Ólaf Ragnar. Almenn framkoma Þóru Arnórsdóttur þótti vega þungt í ákvörðun 51% stuðningsmanna hennar. Á hinn bóginn nefndu einungis 16% stuðningsmanna Ólafs Ragnars að almenn framkoma vegi einna þyngst í ákvörðuninni um hvaða frambjóðanda skuli greiða atkvæði. Sá eiginleiki í fari Ara Trausta Guðmundssonar sem flest stuðningsfólk hans er sammála um að vegi þungt við ákvörðunina um að greiða honum atkvæði er heiðarleiki hans. Þekking og reynsla Ólafs Ragnars Grímssonar er sá eiginleiki sem flest stuðningsfólk hans velur en almenn framkoma Þóru Arnórsdóttur er sá eiginleiki sem flest stuðningsfólk hennar segir hafa vegið þungt við ákvarðanatökuna. Könnunin var send á 1961 þátttakendur og alls svöruðu 1379. Svarhlutfallið er því 70%.//////Þetta getur og mun auðvitað breytast,Ólafur Ragnar mun vina þetta að mínu álti !!!Ekki það að ég sé á móti Þóru sem er frábær sjánvapskona og vel mentuð og hugguleg mjög!! en það er svo að reynslan og ESB sker úr um þetta hjá mér og fleirum,og Samfylking er að styðja Þóru vegna þessa,og þar hefur ÓLafur vinninginn lætur ekki stjórna sér,en vinnur fyrir fólkið,og mun gera Það,hvað ef þau í Samfylkingu fengju nú flitimeðferð í ESB og Alþingi reða bara og engin kosning,mundi ekki Þóra skrifa undir þar!!! en ekki Ólafur Ragnar als ekki!!!!!/Halli gamli

mbl.is Þóra mælist með mest fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála hún er að toppa á vitlausum tíma.  Esb grýlan á eftir að verða henni þrándur í götu þegar á reynir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.4.2012 kl. 20:48

2 identicon

Ég er stuðningsmaður Ólafs Ragnars en það eru einmitt svona skrif sem skemma mest fyrir honum. Er það kannski tilgangurinn?

Þessi skrif eru reyndar á mildari nótunum en ég minnist þess að Ólafur Ragnar fékk mörg atkvæði vegna hatrammrar rógsherferðar andstæðinga hans árið 1994.

valdimar (IP-tala skráð) 26.4.2012 kl. 21:06

3 identicon

Ég veit ekki betur en að fólk úr öllum flokkum og jafnvel utan þeirra líka styðji hana þó eflaust séu margir stuðningsmenn Samfylkingarinnar háværustu stuðningsmenn hennar...

skúli (IP-tala skráð) 26.4.2012 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband