Mancini: Ætlum að vera númer eitt í Manchester/Megi betra liðið vinna,þetta verður vonandi fjörugur og skemtilegur leikur!!!

Mancini: Ætlum að vera númer eitt í Manchester Íþróttir | mbl.is | 30.4.2012 | 9:25 Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að það grannliðanna sem hefur betur í einvíginu um enska 
Roberto Mancini.
meistaratitilinn geti með réttu kallað sig lið númer eitt í Manchesterborg. Liðin mætast í kvöld í uppgjöri sem fer langt með að ákvarða hvort þeirra verður enskur meistari í ár. United hefur þriggja stiga forystu og er með pálmann í höndunum með sigri, og með góða stöðu ef leikurinn endar með jafntefli. „Ef við vinnum titilinn er ekki hægt að deila lengur um það hvaða lið sé númer eitt í Manchester, allavega á þessu ári. En United er með stórkostlega sögu og við henni verður ekki haggað. Okkar markmið eiga að vera þau að gera jafnvel og United, Barcelona og Real Madrid hafa gert,“ sagði Mancini á fréttamannafundi. „Ég tel að við séum í stakk búnir til að vinna marga titla í framtíðinni. Sumir segja að það væri auðveldara ef aðalkeppinautarnir væru ekki í sömu borginni. Ég er ekki sammála því. Ég tel að það sé gott að vinna titil í samkeppni við nágrannana, frekar en lið annars staðar í landinu. Ég kynntist þessu í Mílanó með Inter. Það er skemmtilegra að vinna grannana og það er mikilvægt fyrir Manchesterborg að vera með tvö stórlið,“ sagði Mancini.//////////Við bíðum spennt það er gaman þegar svona tveim sterkum liðum lendir saman ,ekki síst þegar eiginlega um úrslit er að ræða,ég við ekki spá en vona að betra liðið vinni,bæði lið með stjörnumenn og mjög framsækin vona bara að þau leiki sóknarleik,það er eiginlega skilyrði,M.U.N. á meiri möguleika samt!!!,en spyrjum að leikslokum/Halli gamli

mbl.is Mancini: Ætlum að vera númer eitt í Manchester
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045686

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband