Þessar götur verða göngugötur í sumar//þetta er umdeilt mjög eins og flest hjá Borginni!!!

Þessar götur verða göngugötur í sumar Innlent | mbl.is | 30.4.2012 | 15:48 Umhverfis- og samgönguráð samþykkti einróma á fundi sínum í morgun tillögu um göngugötur í Reykjavík í sumar. Göngugötur í miðborg Reykjavíkur síðastliðin sumur hafa gefið góða raun að mati Reykjavíkurborgar. Borgarbúar hafa almennt verið ánægðir með það fyrirkomulag að breyta vinsælum götum í miðborginni í göngugötur yfir 
Göturnar sem verða lokaðar fyrir bílaumferð í sumar.
sumartíma um leið og göngugötur bæta mannlífið, þá eru þær umhverfisvænni því bein mengun frá útblæstri bifreiða og svifryk minnkar til muna, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg Nýlegar kannanir sýna að mikill meirihluti Reykvíkinga er fylgjandi göngugötum í miðborginni. Viðhorf til þess að Laugavegi verði að hluta til breytt í göngugötu í sumar er algjörlega ótvírætt þar sem 75% borgarbúa eru hlynntir en aðeins 25% andvígir. Þá sýnir könnun á reynslu rekstraraðila í miðborginni af lokun gatna fyrir bílaumferð síðasta sumar að 55% telja að reynslan af því hafi verið góð en 45% að hún hafi verið slæm. Einnig voru 55% rekstraraðila fylgjandi því að götum á þeirra rekstrarsvæði yrði lokað fyrir bílaumferð en 45% voru andvíg. (Athugið tölurnar sýna einungis þá sem tóku afstöðu) Göngugötur sumarið 2012 Pósthússtræti við Kirkjustræti verður breytt í göngugötu frá 1. júní til 3. september. Gatan verður opin fyrir akstur með aðföng á milli kl. 08.00 og 11.00 frá mánudegi til föstudags. Bifreiðastöður í Pósthússtræti sunnan Hafnarstrætis verða óheimilar á meðan. Séð verður til þess að bílastæði fyrir hreyfihamlaða verði staðsett nálægt göngusvæði í Kvos. Hafnarstræti verður lokað fyrir bílaumferð frá 17. júní – 3. september að austanverðu frá Pósthússtræti. Umferð verður heimiluð í Hafnarstræti frá Tryggvagötu. Laugavegi verður breytt í göngugötu milli Vatnsstígs og Skólavörðustígs frá 17. júní til 20. ágúst. Akstur með aðföng verður frá þvergötum á móti hefðbundinni umferð fyrir kl. 11.00 á virkum dögum. Séð verður til þess að bílastæði fyrir hreyfihamlaða verði staðsett nálægt göngugötu. Skólavörðustígverður göngugata frá Bergstaðastræti að Laugavegi frá 17. júní til 20. ágúst. Akstur með aðföng verður heimilaður frá Ingólfsstræti fyrir kl. 11.00 á virkum dögum. Séð verður til þess að bílastæði fyrir hreyfihamlaða verði staðsett nálægt göngugötu. Reykjavíkurborg er reiðubúin að lengja göngugötutímabilið og stækka göngugötusvæði sumarsins ef óskað verður eftir því tímanlega./////þessi mál eru umdeild mjög ekki spurning,en sennilega meirihluti fyrir því,en þetta mun fæla kaupmenn frá að vera þarna með verslanir ,eins og raunin sínir!!! það eru svo margir af okkar eldri Borgurum svo ílla göngufærir að þeir einfaldslega fara þetta ekki,Við sem erum Borgara og höfum búið hérna alla tíð,en ef þetta er raunin að þetta gangi i veðrakvöfum okkar rigning og rok að meirihluta er það bara að fólkið fer i Smáralind og Kringlur!!!!Boð og bönn þessara manna er þeirra fag!!!!/Halli gamli

mbl.is Þessar götur verða göngugötur í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045688

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband