2.5.2012 | 16:56
âÞetta er að vinna vel og fagmannlegaâ/Yfirgangur þessa meirihluta er ekki hægt lengur!!!!
Þetta er að vinna vel og fagmannlega Innlent | mbl.is | 2.5.2012 | 16:31 Hér kom háttvirtur þingmaður, hvorki meira né minna en verkstjórinn í þessu máli, og sagði: Hér var vel og fagmannlega
unnið. Þá vitum við hvað þetta þýðir hjá stjórnarliðum. Þetta er að vinna vel og fagmannlega. Það er að senda ekki til neins aðila, spyrja engan. Fá engin sjónarmið. Það er að vinna hlutina vel og fagmannlega. , sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag þegar rætt var um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórnarráðinu. Hann vísaði þar til fyrri ræðu Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sem brást við gagnrýni á það hvernig staðið var að málinu með því að lýsa því yfir að vel og fagmannlega hefði verið staðið að því og að hún teldi að niðurstaða þess hefði ekki orðið önnur þó haldnir hefðu verið fleiri fundir eða málið skoðað meira að öðru leyti. Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins höfðu þá gagnrýnt hvernig staðið hefði verið að vinnu við þingsályktunartillöguna. Málið hefði verið keyrt áfram og ekki verið óskað eftir umsögnum neinna aðila vegna þess þegar það hefði verið til umfjöllunar í nefndum þingsins. Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, beindi fyrirspurn til forseta Alþingis, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, í tvígang í umræðunni þess efnis hvort þau vinnubrögð sem viðhöfð hefðu verið í tengslum við þingsályktunartillöguna gætu talist eðlileg þingleg meðferð. Ekki kom hins vegar svar við því./////Langlundargeð stjórnarandstöðu er löngu búið!! það er vaðið áfram með öll mál og ekkert rætt, það bara skal koma þeim fram,hvað sem það kostar!!! Getur þetta gengið öllu lengur ,í sporum stjórnaranstöðu mundi ég bara labba út, og ekki koma aftur fyrr en komin er sátt um þessi stóru mál als ekkert annað/Halli gamli
Þetta er að vinna vel og fagmannlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.