Styrmir: Forsetaembættið úrelt fyrirbæri/þetta er að vera farsi:Styrmir segir Styrmir segir???

Styrmir: Forsetaembættið úrelt fyrirbæri Innlent | mbl.is | 6.5.2012 | 14:34 Leggja ætti forsetaembættið niður, það er úrelt fyrirbæri, hégómaskapur og tildur. Þetta sagði Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, í Silfri Egils í dag. Styrmir segist furða sig á því að frambjóðendur til forseta Íslands hafi flestir lýst því yfir að þeim finnist sjálfsagt að beita málskotsréttinum, samkvæmt 26. grein stjórnarskStyrmir Gunnarsson. rárinnar. „Ég furða mig á því að umræðurnar skuli vera í þessum farvegi en ekki beinast í þá átt að segja sem svo, sem mér finnst blasa við, að þetta er auðvitað gersamlega úrelt fyrirkomulag, að einhver einn maður sem er kosinn til að búa á Bessastöðum í fjögur ár skuli ráða því hvort einhverju máli sé vísað til þjóðaratkvæðagreiðslu. Auðvitað á þetta að vera þannig að ákveðinn hluti þjóðarinnar sjálfrar geti komið saman og hvatt til þess og haft rétt til þess að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um einstök mál. Það á ekki að vera á valdi eins manns.“ Styrmir segist heldur ekki skilja hvers vegna verið sé að tala um að forseti Íslands eigi að koma að lausn daglegra mála sem hafa verið á verksviði Alþingis Íslendinga frá upphafi. „Ef það á að vera svo, að forsetinn eigi að koma að þessum málum, þá verður að fara fram umræða í þessu samfélagi um það, hvort eigi að breyta forsetaembættinu á þennan veg, gera það jafnvaldamikið og forsetaembættið í Frakklandi til dæmis er,“ sagði Styrmir. Forsetakosningarnar geti þá snúist um það, hvort breyta eigi embættinu á þann veg. „Mín skoðun er að vísu sú, meir og meir, að það eigi að leggja þetta embætti niður. Að við þurfum ekki á því að halda, þetta sé bara einhver hégómaskapur og eitthvert tildur og að það sé hægt að sjá um þær kurteisisskyldur sem þarf að inna af hendi fyrir hönd þjóðarinnar með öðrum hætti, forseti Alþingis geti gert það til dæmis. Þetta sé bara úrelt fyrirbæri.“//////Hvað metur þessi maður ekki alla daga ,allt sem var er vitlaust að manni finn,ég segi bara að hvað er hann að fara að vera að setja sig í einhvern spámann eða hvað,þetta er að verða Farsi um að Styrmir segir.Styrmir segir!!!! eða hefur hann,alvit eða hvað?????/Halli gamli
mbl.is Styrmir: Forsetaembættið úrelt fyrirbæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stjórnarskráin er flott sú besta sem völ er á. Ef ég hef ekki rétt fyrir mér hver er betri? Það er lítið talað um það að Alþingi okkar getur ef það trúir að það fái þjóðina með sér sett forsetann af stóli hvenær sem er. Afhverju er stjórnmálastéttin og fjölmiðkar svona hræddir við lýðinn?

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ

11. grein

Forseti lýðveldisins er ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum. Svo er og um þá, er störfum hans gegna.

Forseti verður ekki sóttur til refsingar, nema með samþykki Alþingis.

,,Forseti verður leystur frá embætti, áður en kjörtíma hans er lokið, ef það er samþykkt með meirihluta atkvæða við þjóðaratkvæðagreiðslu, sem til er stofnað að kröfu Alþingis, enda hafi hún hlotið fylgi 3/4 hluta þingmanna. Þjóðaratkvæðagreiðslan skal þá fara fram innan tveggja mánaða, frá því að krafan um hana var samþykkt á Alþingi, og gegnir forseti eigi störfum, frá því að Alþingi gerir samþykkt sína, þar til er útslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar eru kunn.

Nú hlýtur krafa Alþingis eigi samþykki við þjóðaratkvæðagreiðsluna, og skal þá Alþingi þegar í stað rofið og efnt til nýrra kosninga.''

B.N. (IP-tala skráð) 6.5.2012 kl. 18:49

2 Smámynd: Elle_

Persónulega vil ég valdameiri forseta.  Það mætti þá ræða það að mínum dómi en ekki að leggja forsetaembættið niður.

Elle_, 6.5.2012 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1045805

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband